Karlakvöld, konukvöld og ball

Hið árlega karlakvöld verður haldið þann 1. apríl og verður veislustjóri hinn eini sanni Gummi Ben. Þá mun Maggi í Stuðlabandinu vera með tónlistaratriði og ræðumaður kvöldsins verður enginn annar er bjargvætturinn Martin Eyjólfsson. Einnig verða lið ÍBV fyrir sumarið kynnt með pompi og prakt. Leynigestur mun einnig kíkja á svæðið. Boðið verður upp á geggjaða þriggja rétta máltíð frá Einsa kalda. Uppboðið verður hvílt að þessu sinni en happdrætti verður á sínum stað.

Konukvöld: Konukvöld fótboltans verður endurvakið eftir smá hlé og fer það fram á Háaloftinu á sama tíma. Halli Melló verður veislustjóri, en hann hefur slegið hefur í gegn í Það er komin helgi, og margir þekkja hann einnig sem Magnús Magnús Magnússon úr Skaupinu. Maggi í Stuðlabandinu verður með fjöldasöng og verður áhugaverð kynning, svo ekki sé meira sagt. Leynigestur mun einnig kíkja á svæðið. Einsi kaldi verður með frábæran þriggja rétta seðil og verður boðið upp á geggjaða kokteila. Þá verður happdrætti á sínum stað og liðin fyrir sumarið verða einnig kynnt með pompi og prakt.

Eftir borðhald munu svo allir sameinast í Höllinni á dansleik með Stuðlabandinu, en miði á ballið er innifalinn ef þú mætir á karla- eða konukvöld. Einnig verður hægt að kaupa miða eingöngu á ballið og kostar 3.000 kr. á Tix og 3.500 kr. við hurð.

Mætum klár í efstu deild í sumar og komdu fagnandi 1. apríl! Þetta er ekkert grín!

(Ath. að Stuðlabandið mun ekki vera með ball í Höllinni 2. apríl, heldur var ballinu flýtt til að vera hluti af þessari frábæru dagskrá)

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.