Kastar steinum úr glerhúsi
DSC_3312
Páll Magnússon. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF
Það var fróðlegt að fylgjast með Páli Magnússyni, forseta bæjarstjórnar Vestmannaeyja í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi. Þar gagnrýndi hann þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að stækka ætti Þjóðleikhúsið með nýjum sal í tilefni 75 ára afmæli hússins. Hann sagði það óheppilegt að forsætisráðherra hafi sagt mikilvægt að beita aðhaldi í ríkisrekstri í ljósi óbreyttra stýrivaxta skömmu fyrir tilkynninguna.
„Að sjá menningarmálaráðherrann sirka tveimur klukkutímum síðar koma með yfirlýsingar um milljarða útgjöld í stækkun Þjóðleikhússins. Sem enginn gerði sér grein fyrir að væri einhver knýjandi þörf á. Þetta finnst mér vera mikil spurning um trúverðugleika. Því að trúverðugleikinn í þessum efnum er þess eðlis að ef hann hverfur að þá aukast verðbólguvæntingarnar.“

Sami Páll hefur einmitt staðið í stafni fyrir gerð minnisvarða sem áætlað er að kosti á þriðja hundrað milljónir króna á Heimaey, og það gegn vilja meirihluta bæjarbúa.

Nú er hvíslað um það í bænum að enginn geri sér heldur grein fyrir að knýjandi þörf væri á slíkum minnisvarða eða listaverki eins og forsetinn vill kalla þetta í dag. Sér í lagi þar sem ekki er til fjármagn í brýnni verkefni í sveitarfélaginu. Ekki má heldur gleyma því að sá sem í stafni stendur hefur herjað á þennan sama ríkissjóð um að hjálpa til með að fjármagna verkið. Ja, margt er skrýtið í kýrhausnum!

Nýjustu fréttir

Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Vörubakarí opnaði í morgun
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.