Gengur vel í kolmunnanum hjá Vinnslustöðinni
Fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðvarinnar. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bræðsla kolmunna hjá Vinnslustöðinni stendur nú yfir af fullum krafti og stefnir í að ljúki á næstu dögum. Alls hafa um 11 þúsund tonn verið unnin á tímabilinu. Frá þessu er greint í frétt á heimasíðu fyrirtækisins.

Fram kemur í fréttinni að bræðsla hafi hafist þann 16. apríl sl. og hefur vinnslan gengið nánast linnulaust síðan, með aðeins stuttum hléum á milli farma. Að sögn Unnars Hólm Ólafssonar, verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðju félagsins hefur gengið vel að bræða.

Alls hafa Huginn og Gullberg landað sex sinnum á tímabilinu og er áætlað að rúmlega 11 þúsund tonn af kolmunna fari í gegnum verksmiðjuna. Stefnt er að því að ljúka bræðslu fyrir næstu helgi.

Unnar segir kolmunnann henta vel til mjölframleiðslu um þessar mundir, þó hann sé fremur magur og því sé lýsisframleiðsla minni en ella.

Framleiðslan byggir nú eingöngu á olíu til gufuframleiðslu, en rafskautaketill verksmiðjunnar er óvirkur. Unnar segir það bagalegt í ljósi þess að nægt framboð sé af rafmagni og flutningsgeta til staðar, en raforkuverð sé ekki samkeppnishæft.

Staða mjölbirgða er góð og eru skemmur að fyllast. Útflutningur er framundan á næstu vikum og jafnframt er sending af loðnulýsi á leið úr landi síðar í vikunni.

Fleiri myndir úr bræðslunni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.