Komu með kjána
SAMSUNG CAMERA PICTURES
SAMSUNG CAMERA PICTURES
Áhöfnin á �?órunni Sveinsdóttur VE fékk óvenjulegan fisk er þeir voru að veiðum suðvestur af Surtinum. Fiskurinn líktist nokkuð skötusel en var mun minni og rauður að lit. Reyndist þetta vera fiskur sem kallaður er kjáni og er af kjánaætt. Fiskar þessarar ættar eru botnfiskar og lifa sumir allt niður á 2000 metra dýpi. �?eir finnast í öllu höfum nema íshöfunum. Kjáninn er eina tegund þessarar ættar sem hefur veiðst á Íslandsmiðum. Kjánar eru í raun skyldir skötuselum en báðar tegundirnar eru af ættbálki sem kallast kjaftagelgjur.
Kjánar hafa mikla útbreiðslu og finnast beggja vegna Atlantshafsins. Einnig finnast þeir í Miðjarðarhafinu og nokkrir kjánar hafa veiðst við Íslandsstrendur. �?eir fiskar sem hafa veiðst hér við land hafa verið á 220 til 1050 metra dýpi en kjáninn sem þeir á �?órunni veiddu var á um 600 metra dýpi.
Kjáninn sem komið var með á safnið var 19,5 cm en þeir geta orðið um 30 cm langir. Kjánar hafa stóran og vel tenntan kjaft og mjög stór augu sem eru staðsett ofan á höfðinu. Milli augnanna hafa þeir smásepa með ljósfæri á endanum. �?eir eru því vel búnir til að veiða lítil botndýr sem þeir laða til sín með ljósinu á höfðinu.
Kjáni þessi mun verða stoppaður upp og hafður til sýnis hér á safninu.

Nýjustu fréttir

ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.