Kona á öld hrottans – Saga úr Vestmannaeyjum
Bjarni Karlsson

Nú er konudagurinn haldinn. Hvað er það? Hvað er kona á tímum þegar gamlir hvítir karlar halda veröldinni í gíslingu með landránum og sprengingum af ótta við allt sem kynni að gerast ef lífið fengi að blómstra á sínum raunverulegu forsendum? – Við þurfum að gæta jafnvægis, segja þeir ábúðarfullir hver við annan. Nú skulum við gera Gaza að hagkvæmri rekstrareiningu handa okkur og köllum það Friðarráð! Ha ha ha,“ segir séra Bjarni Karlsson fyrrum sóknarprestur Landakirkju í grein á visir.is í gær og talar tæpitungulaust að venju.

Tilefnið er konudagurinn og Bjarni heggur á bæði borð og vitnar í Jesús sem hvetur fólk til að varast falsspámenn. „Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá.[1] Þjófurinn kemur ekki nema til að stela og slátra og eyða. Ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fullri gnægð.“[2]

Bjarni heldur áfram á sömu nótum: „Hey, strákar, segja friðarráðherrarnir á Gaza og eru í essinu sínu, við verðum líka að koma böndum á kristindóminn. Þeir yrðu nú ekki kræsilegir ársreikningarnir ef hann fengi að fara að eðli sínu. Líf í fullri gnægð hefur aldrei skilað hagnaði, nema fáir njóti. Og fyrst við erum að ræða allt þetta kerlingakjaftæði – Var ekki pottþétt búið að koma því inn í öll kerfin að loftslagsvandi er sósíalísk histería? Ha ha ha! Hendum nú í eina góða hópmynd!

Það er konudagur og því er vert að spyrja: Hvað er kona á öld hrottans?

Í leit að svari skyldum við ekki gleyma því að nú lifum við hér heima við þær óvenjulegu aðstæður að konur gegna flestum helstu valdastöðum í samfélaginu. Það ætti að vera eitthvað, þótt það breyti ekki því að við þessar öfgafullu aðstæður í heimsmálunum hlýtur kona þó alltént að vera hluti af einhvers konar aukaverkuleika,“ segir Bjarni og segir sögu af því þegar þau hjónin, Jóna Hrönn Bolladóttir og hann voru prestar í Vestmannaeyjum.

Saga af konu

„Sumarið 1991 sóttu ég og eiginkona mín, Jóna Hrönn Bolladóttir, um tvær prestsstöður í Vestmannaeyjum. Svo ólík var veröldin þeirri sem við þekkjum hér heima í dag að þá kom aldrei annað til tals en að ég yrði sóknarprestur og hún kæmi upp að hlið mér í starfi. Hún var, jú, kona.

Ert þú að taka við í Eyjum? spurði eldri herra í prestastétt með viðurkenningartón í röddinni. Já, svaraði ég, við förum saman í þetta hjónin. Er hún að fá embætti líka? spurði hann forvitinn. Já, já, það þarf tvo presta á Heimaey. Þá kom stutt þögn uns þessi ágæti karl mælti með tilfinningaþunga: Konur eru og verða konur.

Við vorum tuttugu og sjö og átta ára með vaxandi fjölskyldu og dagarnir í Eyjum urðu hnausþykkir af önnum, yndi og reynslu. Eitt kom þó fljótt í ljós; Aldrei hafði kona annast útför í hinni virðulegu Landakirkju. Mánuðir og misseri liðu. Við gengum til starfa hlið við hlið á öllum sviðum, en þegar einhver kvaddi jarðlífið var karlpresturinn beðinn um að tala yfir og kasta rekunum. Annað hafði aldrei tíðkast.

Dag einn lést yndisleg gömul kona á sjúkrahúsinu eftir erfiða banalegu. Eftir sat sorgmæddur eiginmaður. Þetta var lífsreyndur og flottur karl. Þar sem hann sat með fólkinu sínu og farið var að huga að útför mælti sá gamli: Úr því Jóna Hrönn prestur var nógu góð til að vitja hennar mömmu ykkar vikulega alla mánuðina sem hún þurfti að þjást, þá er hún líka nógu góð til að jarðsyngja hana! Upp úr þessu fór samfélagið í Eyjum að njóta prestsþjónustu konu við jarðarfarir líkt og á öðrum sviðum.

Já, mikið vatn hefur runnið til sjávar og margt hefur breyst, og þó. Ekkert hugtak er pólitískara en kona.“

Nýjustu fréttir

Fólkið okkar og framtíðin
ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.