Um áramót – Stefán Friðriksson – Forstjóri Ísfélagsins
Um áramót er gott að líta um öxl og huga því næst að framtíðinni. Í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski áraði nokkuð vel og þó að loðnuvertíðin hafi verið með allra smæsta móti má segja að góð makrílveiði og ágætis afurðaverð í öllum uppsjávartegundunum hafi skipt miklu máli. Þá hefur orðið verðhækkun á þorski og ýsu og ágætisgangur var í bolfiskveiðum framan af árinu.
Við fengum nýja ríkisstjórn sem hefur strax sýnt í verki að hún hefur sérstakt horn í síðu landsbyggðarinnar en um það vitna mörg verk hennar á fyrsta starfsárinu. Í því ljósi er mikilvægt að við náum að sameina krafta okkar nú þegar sveitarstjórnarkosningar eru fram undan í þeirri varnarbaráttu sem fram undan er hvort sem það er í atvinnulífinu eða jafn sjálfsögðum hlutum eins og heilbrigðis-, mennta- eða samgöngumálum.
Krafturinn og samheldnin er allt sem þarf og fyrir það standa Eyjamenn. Við þurfum ekki annað en að líta til uppbyggingar Laxeyjar, sem hefur verið ævintýri líkust, til að upplifa hverju hægt er að áorka og hvaða góðu áhrif sú uppbygging hefur haft í okkar litla samfélagi.
Hvað mig varðar urðu þau merku tímamót í mínu lífi að ég fékk þá spurningu frá öðrum rakaranum á hárstofu hér í bæ, þar sem margt ber á góma, hvort ég væri ekki innfæddur Eyjamaður. Hafandi verið búsettur hér aðeins síðan 1997 kom spurningin mér gleðilega á óvart. Birkir Hlynsson er því Eyjamaður ársins í mínum huga.
Skrifað að beiðni Eyjafrétta sem fengu nokkra menn og konur um að líta yfir liðið ár og fram á veginn.



















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.