Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurlands

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) standa fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Suðurlands í dag miðvikudag kl: 12:15 – 13:00. Fundurinn verður í beinu streymi á ZOOM og eru allir áhugasamir hvattir til að taka hádegið frá og kynna sér markmið, áherslur og umsóknarferli sjóðsins ásamt því að ráðgjöf SASS verður kynnt.

Sjóðurinn opnar bráðum fyrir umsóknir og rennur umsóknarfrestur út 1. mars 2021 kl. 16:00. Um er að ræða fyrri úthlutun þessa árs. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki sem skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu.

Nánar um sjóðinn
Linkur á ZOOM fundinn
Linkur á viðburðinn á facebook

Umsækjendur og aðrir áhugasamir eru velkomnir að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og/eða leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, einnig má hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.