Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurlands

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) standa fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Suðurlands n.k. fimmtudag kl: 12:15 – 13:00. Fundurinn verður í beinu streymi á ZOOM og eru allir áhugasamir hvattir til að taka hádegið frá og kynna sér markmið, áherslur og umsóknarferli sjóðsins ásamt því að ráðgjöf SASS verður kynnt.

Sjóðurinn er nú opinn fyrir umsóknir og er síðasti séns til að senda inn umsókn 2. mars 2021 kl. 16:00. Um er að ræða fyrri úthlutun þessa árs. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki sem skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu.

Umsækjendur og aðrir áhugasamir eru velkomnir að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og/eða leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, einnig má hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 2.mars 2021

Nýjustu fréttir

Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
„Fjölskyldan fullyrðir að ég sé að verða níræður“ – Svabbi býður til afmælisveislu
Lára Skærings er óhrædd við að prófa nýja hluti  
Íslendingur vann 336 milljónir!
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.