Landa fullfermi í Eyjum
20221101 121630
Bergur VE og Vestmannaey VE við bryggju í Eyjum.

Ísfisktogararnir Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu allir nú í byrjun vikunnar. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Gullver landaði rúmlega 100 tonnum á Seyðisfirði í gær. Mestur hluti aflans var þorskur og ýsa. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að veðrið í túrnum hefði verið misjafnt. „Fyrstu tvo dagana var bölvuð bræla en eftir það gekk á ýmsu – það var ýmist bræla eða þokkalegt veður. Þegar veðrið var verst voru allt upp í 18 – 20 metrar. Við byrjuðum veiðar á Tangaflakinu, síðan var haldið á Gerpisflak, þá voru tekin nokkur hol í Berufjarðarálnum í leit að karfa og endað á Hvalbaksgrunni en þar veiddum við í Bæli karlsins. Við höldum til veiða á ný á morgun,“ segir Þórhallur.

Vestmannaey landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir að vel hafi gengið að veiða en leiðinlegt veður hafi verið allan tímann. „Við vorum einungis tæpa þrjá sólarhringa á veiðum þannig að það er varla hægt að kvarta. Aflinn fékkst að mestu austur á grunnum – á Öræfagrunni, Ingólfshöfða og á Skeiðarárdýpinu. Það var haldið til veiða strax eftir löndun og nú erum við að leita að karfa,“ segir Birgir Þór.

Bergur landaði fullfermi í Eyjum í morgun. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri segir að aflinn hafi verið blandaður. „Við hófum veiðar á Öræfagrunni og síðan var veitt á Skeiðarárdýpinu og Ingólfshöfða. Við restuðum svo í Reynisdýpinu. Það gekk þokkalega að veiða en megnið af túrnum var norðaustan bræla og haugasjór. Síðasti sólarhringurinn var skástur veðurfarslega,“ segir Ragnar.

Bergur heldur á ný til veiða á fimmtudagskvöld.

Nýjustu fréttir

Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.