Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar samkvæmt eftirfarandi áætlun: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 (áður 17:00) og kl 18:00 (áður 19:30). Brottför frá Landeyjahöfn kl. 17:00 (áður 18:15) og kl 20:45
Aðrar ferðir hafa verið felldar niður þ.e. kl. 22:00/23:15. Ef gera þarf breytingu á áætlun, þá gefum við frá okkur tilkynningu um leið og það liggur fyrir, segir í tilkynningu frá skipafélaginu.
Fimmtudagur 12.desember 2024
Þá segir að Herjólfur sigli til Þorlákshafnar á morgun, fimmtudag. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 (áður 17:00). Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45 (áður 20:45). Aðrar ferðir falla niður.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Strætó fer frá Mjódd kl. 09:00.
Hvað varðar siglingar fyrir föstudag verður gefin út tilkynning fyrir kl. 06:00 á föstudagsmorgun.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst