Laxey og lúxushótel skapa tækifæri
Johann Opf Cr DSC 8755
Jóhann Halldórsson. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Okkar maður, Jóhann Halldórsson, sem skrifað hefur pistla á Eyjafréttir.is þar sem hann veltir upp stöðu og framtíð Vestmannaeyja hélt áhugaverðan fyrirlestur við afhendingu Fréttapýramídanna. Jóhann kallar pistla sína Litla Mónakó og vísar til mikillar uppbyggingar í Vestmannaeyjum.

Fór hann yfir þá þýðingu sem tilkoma Laxeyjar er fyrir Vestmannaeyjar og þá möguleika sem opnast með opnun hótels og baðlóns á Nýja hrauninu. Að hans mati þurfum við ekki að kvíða framtíðinni. Að Laxey standi öflugur fjárfestar með mikla þekkingu á eldi. Verkefni upp á 60 milljarða og 30 milljarða veltu þegar því lýkur.

Jóhann benti á þá möguleika sem opnast með  byggingu 90 herbergja lúxushótels sem tengist alþjóðlegri hótelkeðju. Það skapi líka tækifæri fyrir ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Hér að neðan má sjá myndband sem Halldór Halldórsson tók í Eldheimum á föstudaginn sl.

 

Play Video

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.