Leggja til 1% hækkun í þorski
DSC_7145
Trollið tekið inn. Eyjar.net/Eyjafréttir: Óskar Pétur Friðriksson

Hafrannsóknastofnun ráðleggur 1 % hækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2024/2025. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því hækkar ráðlagður heildarafli úr 211 309 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 213 214 tonn. Gert er ráð fyrir að stærð viðmiðunarstofns þorsks verði svipuð næstu tvö til þrjú ár þegar árgangarnir frá 2020 og 2021 koma að fullu inn í viðmiðunarstofninn þar sem þeir eru nú metnir við og undir meðallagi, segir í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun.

Nær óbreytt ráðgjöf milli ára í ýsu og ufsa

Samkvæmt aflareglu verður aflamark ýsu 76 774 tonn sem er nær óbreytt ráðgjöf frá yfirstandandi fiskveiðiári. Áætlað er að stærð viðmiðunarstofns muni haldast stöðug næstu tvö árin vegna góðrar nýliðunar áranna 2019 til 2021 en fari svo lækkandi.

Ráðgjöf fyrir ufsa samkvæmt aflareglu er nær óbreytt frá yfirstandandi fiskveiðiári og er 66 705 tonn.

Ráðgjöf fyrir gullkarfa hækkar á milli ára

Ráðgjöf fyrir gullkarfa er 46 911 tonn eða 14 % hærri en á yfirstandandi fiskveiðiári. Þrátt fyrir hækkunina er rétt að benda á að nýliðun gullkarfa hefur verið mjög slök undanfarinn áratug og af þeim sökum hefur hrygningarstofn minnkað á undanförnum árum. Fyrirséð er að stofninn fari minnkandi á komandi árum og að draga þurfi verulega úr sókn.

Áfram er lagt er til að aflamark djúpkarfa verði 0 tonn þar sem hrygningarstofninn er metinn undir varúðarmörkum. Ekki er búist að stofninn fari upp fyrir varúðarmörk í fyrirsjáanlegri framtíð.

Ráðgjöf fyrir grálúðu lækkar

Ráðgjöf fyrir grálúðu lækkar um 9 % frá fyrra ári og er 17 890 tonn. Ráðlagt aflamark er lægra vegna þess að stofninn er nú metinn undir varúðarmörkum. Þó er útlit fyrir að stofninn fari vaxandi á næstu árum vegna góðrar nýliðunar.

Ráðgjöf um aflamark íslensku sumargotssíldarinnar fylgir nú nýrri aflareglu, þar sem aflamark komandi fiskveiðiárs er nú 19 % af viðmiðunarstofni (lífmassa 4 ára síldar og eldri) í stað 15 %. Þrátt fyrir þessa hækkun á veiðihlutfalli er ráðgjöf samkvæmt aflareglu stjórnvalda 81 367 tonn eða 12 % lægri en á yfirstandandi fiskveiðiári. Helgast það að því að viðmiðunarstofninn er nú metinn umtalsvert minni en í fyrra.

Á meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir ráðgjöf stofnunarinnar.

Tillögur um hámarksafla fiskveiðiárið 2024/2025, ásamt tillögum og aflamarki samkvæmt ákvörðun stjórnvalda fyrir fiskveiðiárið 2023/2024 (í tonnum). Einnig er sýnd hlutfallsleg (%) breyting á ráðgjöf milli fiskveiðiára.

Stofn  Ráðgjöf 2024/2025  Ráðgjöf 2023/2024  % breyting á ráðgjöf  Aflamark 2023/2024 
Þorskur1) 213  214 t 211  309 t 1 211  309 t
Ýsa1) 76  774 t 76  415 t 0 76  415 t
Ufsi1) 66  705 t 66  533 t 0 66  533 t
Gullkarfi1)2) 46  911 t 41  286 t 14 36  462 t
Langa1) 6  479 t 6  566 t -1 6  566 t
Blálanga3) 307 t 259 t 19 259 t
Keila1) 5  914 t 5  139 t 15 5  139 t
Steinbítur1) 9  378 t 8  344 t 12 8  344 t
Grálúða2) 17  890 t 19  703 t -9 13  463 t
Djúpkarfi 0 t 0 t 0 t
Sumargotssíld1) 81  367 t 92  633 t -12 92  633 t
Skarkoli1) 7  878 t 7  830 t 1 7  830 t
Gulllax 12  273 t 10  920 t 12 12  080 t
Lúða 0 t 0 t 0 t
Tindaskata 818 t 822 t 0
Lýsa 1  571 t 1  309 t 20
Hlýri3) 296 t 296 t 0 296 t
Skötuselur3) 188 t 188 t 0 188 t
Þykkvalúra3) 971 t 971 t 0 971 t
Langlúra3) 1  476 t 1  476 t 0 1  476 t
Stórkjafta3) 92 t 92 t 0
Sandkoli3) 361 t 361 t 0 361 t
Skrápflúra3)
Litli karfi3) 569 t 569 t 0 569 t
Beitukóngur 190 t 196 t -3
Skollakoppur3) 194 t 194 t 0
Hörpudiskur 75 t 75 t 0 75 t
1)Ráðgjöf skv. aflareglu
2)Aflamark á öllu útbreiðslusvæði stofns fyrir almanaksár
3)Ráðgjöf annað hvert ár

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.