Leikmannakynning ÍBV og Krókódíla fer fram í kvöld. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV segir að nú fari að líða að fyrstu heimaleikjunum í vetur og á að byrja tímabilið með leikmannakynningu í Akóges. Húsið opnar kl. 20:00 og er gert ráð fyrir því að kynningin sjálf hefjist kl 20:15.
Léttar veigar verða í boði á meðan fundinum stendur. Ef þú vilt verða Krókódíll sendu tölvupóst á
hjorvar@ibv.is. Allir velkomnir, segir í tilkynningunni.