Ljósin tendruð á jólatré á Stakkó

Vegna takmarkana er ekki hægt að hafa hefðbundna athöfn við tendrun jólaljósanna á trénu okkar en að sjálfsögðu munum við gera þetta eins gleðilegt og aðstæður leyfa.

Kveikt verður á jólatrénu á Stakkó laugardaginn 28. nóvember kl 16:00 og verða upplýsingar varðandi útsendingu af viðburðinum birtar á vef Vestmannaeyjabæjar. Ekki er ætlast til að fólk safnist saman á Stakkó meðan kveikt er á trénu.

Elís Jónsson, forseti bæjarstjórnar og sr. Viðar Stefánsson segja nokkur orð.
Jarl og jólasveinarnir syngja jólalög

Að endingu ætlar ungur drengur sem fæddur er á jóladag, Ívar Eydal Sigfússon að kveikja á ljósunum á trénu. Vestmannaeyjabær hvetur fólk til að horfa á athöfnina heima.

Flestar verslanir eru með opið til kl. 21:00 á föstudagskvöld og til kl. 16:00 á laugardag með afslætti vegna svarts föstudags. Skemmtilegt er að taka fjölskyldudag um helgina og skoða jólatréð og kíkja í búðir.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.