Loðnumælingar á næstu vikum
Af loðnumiðunum Mynd: Óttar Steingrímsson

Í dag 18. janúar halda bæði skip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, til loðnumælinga. Markmiðið er að ná mælingu á stærð hrygningarstofnsins á næstu tveimur vikum.

Fyrir liggur mæling á stærð stofnsins frá því í haust við Grænland sem leiddi til ráðgjafar upp á rúm 904 þúsund tonn. Gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að sú ráðgjöf verði endurskoðuð að loknum mælingum nú í vetur.

Lokaráðgjöf um aflamark fyrir yfirstandandi vertíð mun svo byggja á niðurstöðum þessara tveggja mælinga.

Fyrirhugað yfirferðarsvæði rannsóknaskipanna, Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar

Á síðustu árum hefur loðnuskipaflotinn tekið þátt í þessum mælingum en ekki er gert ráð fyrir slíku í ár þar sem þau skip eru upptekin við veiðar. Útgerðir munu hinsvegar veita aðstoð og upplýsingar um loðnudreifingu sem nýtast við mælingarnar.

Fyrirhugað yfirferðarsvæði skipanna tveggja er sýnt á mynd með frétt, ásamt leiðarlínum miðað við tvöfalda umferð. Nokkrir þættir geta svo haft áhrif á endanlegt yfirferðarsvæði svo sem veður, dreifing loðnu og hafís.

Hægt er að fylgjast með ferðum rannsóknaskipa á skip.hafro.is/

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.