Lögbanns krafist á hluthafafund VSV
Brim hf., eigandi tæplega 33% í Vinnslustöðinni hf., fer fram á það við sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum að lögbann verði lagt við því að haldinn verði boðaður hluthafafundur í VSV á miðvikudaginn kemur, 31. ágúst, til að kjósa félaginu nýja stjórn. Lögbannsbeiðnin verður tekin fyrir hjá sýslumanni í dag en niðurstöðu er ekki að vænta fyrr en síðdegis á morgun. En þetta kom fram á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.
Gunnar Sturluson hrl. fer með málið fyrir hönd gerðarbeiðanda, Brims, en Helgi Jóhannesson hrl. fyrir hönd gerðarþola, Vinnslustöðvarinnar.
Krafa um lögbann á rætur að rekja til deilna um stjórnarkjör á aðalfundi VSV 6. júlí 2016. Fundarstjóri úrskurðaði að stjórnarkjörið væri ólögmætt þegar í ljós kom að ekki höfðu öll atkvæði í fundarsal skilað sér til talningar og að störfum talningarnefndar aðalfundar hefði ekki verið lokið. Hann lét endurtaka kosninguna með nýjum kjörseðlum.
Gerðarbeiðendur telja að fyrri kosningin á aðalfundinum hafi verið lögmæt og eigi að standa. Stjórnin sem kjörin var sé ólögmæt og því umboðslaus. Í greinargerð lögmanns Brims kemur fram að �??töluverð hætta�?? sé á að gerðarbeiðandi lögbannsins verði fyrir �??óafturkræfu tjóni og að réttindi hans fari forgörðum ef beðið verður dóms.�??
Lögmaður VSV hafnar því að tilefni lögbanns sé til staðar og segir að ekki verði séð �??hvernig gerðarþoli geti orðið fyrir stórtjóni við það eitt að félagið fari að lögum og boði til hluthafafundar þegar þess er krafist.�?? Hann segir enn fremur í greinargerð sinni til sýslumanns að í ljósi deilna á aðalfundinum ríki óvissa um hverjir réttilega skipi stjórn VSV. Við slíkt sé ekki búandi af hálfu gerðarþolans, þ.e. Vinnslustöðvarinnar, og því sé nú boðað til hluthafafundar sem hafi það hlutverk eitt að ákvarða hverjir skuli sitja í stjórn félagsins. Ekki verði annað séð en hagsmunir gerðarbeiðanda og gerðarþola fari saman með því að eyða þannig óvissunni.
�?á kemur fram í greinargerð lögmanns VSV að stjórnarmaðurinn Ingvar Eyfjörð hafi ekki viljað undirrita tilkynningu til fyrirtækjaskrár embættis ríkisskattstjóra um stjórnarkjör á aðalfundinum í júlí og því hafi slík tilkynning ekki verið send. Ingvar hafi samt setið stjórnarfund í framhaldi af aðalfundi og ekki gert athugasemdir við ákvörðun um skiptingu verka innan stjórnar. Nú sé meira en mánuður liðinn frá aðalfundi og fyrirtækjaskrá taki ekki við tilkynningum um nýjar stjórnir félaga ef meira en mánuður líði frá stjórnarkjöri. Í slíkum tilvikum þurfi nýjan fund sem staðfesti fyrri ákvörðun eða kjósi nýja stjórn. �?ví sé ómögulegt að skrá nýja stjórn VSV nema nýr hluthafafundur ákvarði skipan stjórnarinnar.

Nýjustu fréttir

Morgan Goði stal senunni í sigri ÍBV á Aftureldingu
Fyrsti snjór ársins loksins fallinn í Eyjum
Vestmannaeyjar fyrri tíma lifna við í Sagnheimum
Liam Daði gengur til liðs við ÍBV
Horfa til úthafseldis vestur af Vestmannaeyjum
Loðnuvertíð í hámarki
Perlað fyrir Kraft í Höllinni
Dýpi í Landeyjahöfn ekki nægilegt nema við bestu aðstæður

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.