Má bjóða þér nýja ríkisstjórn?

Fólki finnst komin tími til að tekið sé til hendinni í málefnum eldri borgara sem og samgöngumálum. Bæði þessi mál kalla á þjóðarsátt um þjóðarátak.
�?riðja málið hef ég kallað dýra Ísland. Undir það falla verðlagsmál ýmis konar; matvælaverð, lánakjör, bensínverð, lyfjaverð, kostnaður við tryggingar og í raun öll þau atriði sem gera Ísland að svo mikið dýrari valkosti til búsetu en öll önnur lönd sem við berum okkur saman við.

Stjórnin fallin

Skoðanakannanir síðustu vikna hafa ítrekað sýnt að núverandi ríkisstjórn er fallinn. �?að mun koma ný ríkisstjórn á næsta kjörtímabili og það eru yfirgnæfandi líkur á því að Samfylkingin verði þar í burðarhlutverki. �?etta eru þau þrjú mál sem Samfylkingin mun því leggja megináherslu á í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili. Verðlagsmál, málefni eldri borgara og samgöngur. Núverandi stjórnarflokkar hafa haft 12 ár til þess að láta til sín taka i þessum málaflokkum en meira hefur verið sagt en gert. Fyrirhuguð lækkun matvælaverðs sem taka á gildi einum mánuði fyrir kosningar er hlægilegur vitnisburður um raunverulegan vilja stjórnarflokkanna í þessum efnum. Í Vestmannaeyjum hefur sú lækkun nú þegar verið tekin til baka og er orðin að hækkun með 11% hækkun á farþega- og farmgjöldum sem skilar sér beint út í verðlagið.

Sigurlisti

Nú hafa allir flokkar í suðurkjördæmi lokið niðurröðun á framboðslista sína. Framundan er vonandi málefnaleg kosningabarátta þar sem frambjóðendur kynna sín stefnumál og leyfa svo kjósendum að ráða. Sigurlisti Samfylkingarinnar hefur á síðustu vikum og mánuðum komið til fundar við kjósendur í suðurkjördæmi og mun gera það áfram á þeim tæpu 100 dögum sem eru til ríkisstjórnarskipta. Framboðslisti okkar mun leggja ríka áherslu á þau þrjú mál sem lágu eins og rauður þráður í gegnum fundi formanns Samfylkingar í kjördæminu og ég nefndi hér að ofan. Í efstu sætum framboðslista okkar býr aukinheldur mikil þekking í málefnum menntakerfis, dómskerfis, umhverfismála, sveitarstjórna og vinnumarkaðs. �?etta er traustur framboðslisti; sannur sigurlisti. �?g hvet þig til þess að taka þátt í því að mynda með okkur nýja ríkisstjórn í vor.

Róbert Marshall skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.