Magni, Bergur Páll og Halldór heiðraðir
Áhöfninn á Þór og þeir sem voru heiðraðir. Þráinnn, Arnar, Steinar og Þorbjörn. Heiðurshafar Magni og Halldór og fyrir framan eru afastrákarnir Bergur Björn Auðunsson og Haraldur Dúi bróðir hans.

„Ég vil byrja á því að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með þennan frábæra dag. Hér hjá okkur eru reynsluhlaðnir menn sem kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að veltast um allan sjó og fer vel á því að sýna þeim heiður í tilefni dagsins,“ sagði Guðni Hjálmarsson sem stýrði athöfn þar sem eldri sjómenn voru heiðraðir.

 Sjómannafélagið Jötunn heiðraði Magna Frey Hauksson sem steig um borð í Dala Rafn og byrjaði þá sjómennsku sína 1978. „Hann kom víða við á ferli sínum og sótti sjóinn með áhöfnunum á Ófeigi lll,  á Smáey, á Bergey, hann fór svo á frystinguna á Vestmannaey og síðar á Breka. Í dag er hann á Frá VE. Magni Freyr hefur verið á sjó í tæp 48 ár,“ sagði Guðni.

Gísli Matthías, formaður Sjómannadagsráðs hengir heiðursmerki í barm Halldórs.

Fyrstu feðgarnir

Skipstjóra og stýrimannafélagið Verðandi, heiðraði Berg Pál Kristinsson sem byrjaði snemma á sjó 15 ára gamall. „Þá sem hálfdrættingur, að eigin sögn  á Vestmannaey árið 1975. Hann starfaði síðar sem stýrimaður og skipstjóri á Bergey, á Ófeigi og ekki síst á Herjólfi. Hann starfaði einnig lengi hjá Vestmannaeyjahöfn þ.m.t. sem skipstjóri á Lóðsinum. Bergur hefur starfað lengi að málefnum sjómanna hjá bæði Verðanda og Farmannasambandinu.

Þess má til gamans geta að hann og Kristinn pabbi hans eru fyrstu feðgar sem heiðraðir eru af Verðanda,“ sagði Guðni en Bergur Páll var erlendis og kom það í hlut barnabarnanna að taka við viðurkenningunni. Tóku Bergur Björn Auðunsson og Haraldur Dúi bróðir hans við skildinum og viðurkenningunni fyrir hönd afa síns.

Myndir Óskar Pétur.

 

Guðni stýrði athöfninni af röggsemi.

 

Hefur víða siglt

 „Félag vélstjóra heiðraði Halldór Waagfjörð fyrir störf sín um mörg heimsins höf. „Eftir vélskólann 1971 byrjaði hann á Björginni og einnig á Danska Pétri, þar eftir á Hrönn. Sumarið 1972 kaupa þeir Ingvi Geir Skarphéðinsson Andvara og gera út. Nokkrum árum seinna fer hann á Vestmannaey og smyr vélina í 11 ár.

Að því loknu flytst hann til Ástralíu og starfaði á nokkrum togurum þar en kemur heim haustið 1999 og munstrar sig á Huginn, hann fer þaðan til Reykjavíkur og ræður sig á Bakkafoss þá síðar á Skógarfoss og svo á Dettifoss. Halldór kemur svo aftur til Eyja og tekur við yfirvélstjórn á Herjólfi  til 2015 en er að lokum með hraðferjuna Akranes til loka árs 2017,“ segir Guðni um feril Halldórs.

Sjóamannadagsráð skilaði góöu verki þetta árið eins og undanfarin ár.

 

Karlakór Vestmannaeyja lét ekki sitt eftir liggja. Stjórnandi hans er Matthías Harðarson, nýráðinn dómorganisti.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.