Málfrelsi ungu kynslóðarinnar – og ábyrgðin sem bíður okkar
Eftir Jóhann Inga Óskarsson
Johann Ingi Ads IMG 4231 (1)
Jóhann Ingi Óskarsson

Undanfarnar vikur hef ég tjáð mig opinberlega um samfélags- og bæjarmál. Viðbrögðin hafa verið fjölbreytt; flest uppbyggileg, en einnig hafa komið fram raddir sem efast um að ungur einstaklingur eins og ég geti skrifað greinar eða tekið þátt í pólitískri umræðu af fullri alvöru. Margir virðast telja að ungur einstaklingur án háskólamenntunar geti einfaldlega ekki sett fram rökstudd sjónarmið nema einhver eldri og reyndari standi í raun á bakvið þau.

Þessi viðhorf eru ekki aðeins úr takt við tímann,— heldur sýna þau hversu brýnt það er að við, sem erum yngri, fáum raunverulega rödd í þeim ákvörðunum sem móta framtíð okkar.

 

Framtíðin tilheyrir þeim sem þurfa að lifa með henni

Ungt fólk mun taka við samfélaginu. Það er okkar kynslóð sem mun lifa með þeim pólitísku ákvörðunum sem teknar eru í dag; ákvörðunum um húsnæðismál, atvinnuþróun, fjárfestingar í innviðum, menntakerfi og fjölskyldustefnu. Því er óvarlegt, jafnvel skaðlegt, að gera lítið úr röddum ungs fólks á þeirri forsendu að við séum ekki komin með gráður, starfsreynslu sem millistjórnandi í banka eða á ákveðinn aldur.

Þvert á móti þurfum við að hvetja til miklu meiri þátttöku yngri hópa í stjórnmálum,— ekki síður á vettvangi sveitarfélaga, þar sem ákvarðanir snerta samfélagið beint og daglegt líf fólks strax.

 

Ungt fólk utanborðs

Aldur á ekki að ráða því hverjir stjórna, en fjölbreytni skiptir máli. Í dag er bæjarstjóri á sextugsaldri, forseti bæjarstjórnar á áttræðisaldri, oddviti Sjálfstæðisflokksins á sjötugsaldri og formaður bæjarráðs á fimmtugsaldri. Yngstur þessara er formaður bæjarráðs, og hann er sá eini sem hefur ákveðið að hætta. Meðalaldur núverandi bæjarfulltrúa eru rúmlega 50 ár.

Þetta er ekki árás á þessa einstaklinga; þetta er allt gott fólk, fullt af reynslu. En staðreyndin er sú að þeir sem eldri eru lifa ekki daglegu lífi ungra fjölskyldna. Þeir eru ekki persónulega að glíma við leikskólamál, heimgreiðslur, samræmingu vinnu og uppeldis eða þau tugþúsund smáverkefni sem fylgja því að vera yngri. Þess vegna verðum við að tryggja að sjónarhorn ungs fólks sé raunverulega til staðar við stjórn samfélagsins. Ekki sem skraut á lista heldur að viðhorf þeirra fái rými í ákvörðunartöku. Rými sem ég tel hafa vantað seinustu ár.

 

Samfélag sem hlustar á ungt fólk byggir á framtíðarsýn

Ef við ætlum að byggja samfélag sem stendur sterkt næstu áratugi verðum við að skapa rými fyrir nýjar hugmyndir og ferska sýn. Ungar kynslóðir eru að kljást við raunveruleg vandamál: húsnæðisskort, erfiða stöðu til að koma sér fyrir, verðbólgu sem étur upp kjörin og atvinnu sem þarf að þróast með nýjum kynslóðum. Ungt fólk eins og ég finnur fyrir þessum vandamálum og vill taka þátt í að skapa lausnir við þeim.

Við vitum hvað skiptir okkur máli.

Við vitum hvað ungar fjölskyldur þurfa.

Við vitum hvaða breytingar gera Vestmannaeyjar að stað þar sem ungt fólk sér framtíð.

Það er ekki skynsamlegt að byggja framtíð samfélags á skoðunum þeirra sem eru komnir langt frá þessari reynslu,— heldur í samstarfi við þá sem standa í henni hér og nú.

 

Lýðræðið styrkist þegar fleirum er boðið með

Við þurfum að efla pólitíska þátttöku ungs fólks, ekki með rísandi ræðu um mikilvægi lýðræðis, heldur með raunverulegum tækifærum. Ungir einstaklingar eiga að vera hvattir til að bjóða sig fram, taka þátt í nefndarstörfum, móta stefnu og hafa áhrif,— án þess að þurfa að sanna sig meira en aðrir.

Því sú staðreynd er óumdeilanleg:

Einstaklingur með hamar við hönd skiptir samfélaginu alveg jafn miklu máli og einstaklingur með háskólamenntun. Mismunandi reynsla bætir samfélagið,— hún útilokar ekki.

 

Næstu kosningar:– okkar tækifæri til að byggja nýtt upp

Þess vegna skiptir máli að við, sem samfélag, förum inn í næstu sveitarstjórnakosningar með opnum huga. Við eigum ekki að kjósa eingöngu eftir flokksmerkingum heldur einstaklingum sem við teljum að hafi heiðarleika, áhuga og metnað til að byggja upp samfélagið til framtíðar.

Ef við viljum nýja orku, nýjar hugmyndir og raunverulegan vilja til að hlusta,– þá þurfum við að treysta fólki úr öllum aldurshópum, líka þeim yngri.

 

Lengi lifi tjáningarfrelsið,— og framtíð Vestmannaeyja

Vestmannaeyjar eru einstakt samfélag. Hér þekkjumst við, styðjum hvort annað og stöndum saman þegar mest á reynir. Sama hvort við erum sjómenn eða smiðir, heilbrigðisstarfsfólk eða kennarar, fyrirtækjaeigendur eða ungt fólk að stíga sín fyrstu skref,— þá deilum við allir sömu rótum og sömu von um sterka framtíð Eyjanna.

Nú er rétti tíminn til að nýta saman kraftinn og dugnaðinn sem býr í okkur öllum. Að fagna ólíkum röddum, leyfa nýrri sýn að vaxa og taka höndum saman um að byggja samfélag sem verður enn betra fyrir næstu kynslóðir.

 Framtíð Vestmannaeyja er björt,— en hún fæst ekki gefins. Björt framtíð Vestmanneyja og íbúa eyjunnar fögru byggist á því að við tökum höndum saman, hlustum hvert á annað og leyfum öllum röddum að heyrast.

Við eigum ekki bara að tala um sterkt samfélag,— við eigum að skapa það saman.

 

Jóhann Ingi Óskarsson

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.