Mannabreytingar í stjórn Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja
visit_vestmannaeyjar_is_ads
Ferðamálasamtök Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabær og Herjólfur ohf. fóru í markaðssetningarátak undir slagorðinu Visit Vestmannaeyjar.

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja var haldinn sl. þriðjudag. Mannabreytingar urðu á stjórn samtakanna og ákváðu þrír reynslumiklir stjórnarmenn að draga sig í hlé frá stjórnarsetu. Það eru þau Berglind Sigmarsdóttir, Íris Sif Hermannsdóttir og Páll Scheving Ingvarsson. Auk þeirra hætti Jóhann Ólafur Guðmundsson í stjórn eftir árs stjórnarsetu.

Í stað þeirra komu í stjórnina þau Ólafur Jóhann Borgþórsson, María Ýr Kristjánsdóttir, Jón Þór Guðjónsson og Ingibjörg Bryngeirsdóttir. Þá voru þau Eyþór Þórðarson, Hallgrímur Rögnvaldsson og Hafdís Ósk Ólafsdóttir endurkjörin í stjórn. Stjórnin hefur þegar skipt með sér verkum og er Jón Þór formaður, María Ýr varaformaður, Eyþór er gjaldkeri, Hafdís ritari og Hallgrímur, Ingibjörg og Ólafur Jóhann meðstjórnendur.

Hafa sameinast um að efla ímynd og kynna Vestmannaeyjar

Í tilkynningu á samfélagsmiðli samtakana frá Berglindi, Írisi Sif og Páli vilja þau á þessum tímamótum – eftir átta ára stjórnarsetu – koma á framfæri þökkum til þeirra 34 fyrirtækja sem tilheyra samtökunum, bæjaryfirvalda og ekki síst til fulltrúa sem setið hafa í stjórn með þeim á þessu tímabili og unnið árangursríkt starf við markaðssetningu og uppbyggingu ferðaþjónustunnar í Vestmannaeyjum.

„Ferðamálasamtökin hafa undanfarin ár sameinast um að efla ímynd og kynna Vestmannaeyjar með það eitt að markmiði að fjölga ferðamönnum til Vestmannaeyja. Það hefur tekist mjög vel og árangurinn sem betur fer mælanlegur.  Fyrirtæki í Ferðamálasamtökunum samþykktu verulega hækkun félagsgjalda á sínum tíma til eflingar markaðsstarfsins. Vinnuframlag Ferðamálasamtakana er allt unnið í sjálfboðavinnu.

Þetta starf hafa bæjaryfirvöld stutt fjárhagslega. Kostnað við framleiðslu markaðsefnis og birtinga, sem hefur skilað samfélaginu miklum tekjum í rekstri Herjólfs, Eldheima, Íþróttamiðstöðvarinnar og svo hafa tekjur hafnarinnar af komu skemmtiferðaskipa aukist verulega og aðrir innviðir styrkst umtalsvert.

Vestmannaeyjar eru stórkostlegt náttúrufyrirbæri með merkilega sögu og sterka innviði. Það er mikilvægt verkefni að kynna það ferðamönnum og helst á áhrifaríkan hátt. Þannig aukum við fjölbreytni í atvinnulífinu og eflum enn frekar innviði samfélagsins. Við hvetjum nýja og öfluga stjórnarmeðlimi til góðra verka og óskum þeim velfarnaðar við umsjón og stjórn á mikilvægu verkefni fyrir Vestmannaeyjar.” segir í tilkynningu þremenningana.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.