Messi og Vestmannaeyjar
samsett (1000 x 667 px) (5)
Mikil uppbygging á sér nú stað í Eyjum. Samsett mynd.

Það má með sanni segja að fjárfestar hafi trú á því sem er að gerast í Vestmannaeyjum.

Ekki er langt síðan að kauphallarfyrirtækið Kaldalón hf. og stórir innlendir fjárfestar líkt og aðilar tengdir Eskju og Jón Ásgeiri keyptu eignir á vel yfir 1000 milljónir í Eyjum. Má þar nefna eignir eins og Hótel Vestmannaeyjar, Gamla pósthúsið, Bása, ný einbýlishús o.s.frv.

Stórir aðilar hafa sömuleiðis fjárfest í Laufeyju. Verkefni við afleggjarann til Landeyjahafnar, sem mun skila auknum ferðamannafjölda til Eyja og hjálpa til við að beina þeim fjölda ferðamanna til Eyja sem keyrir hringveginn á Suðurlandi.

Baðlón og lúxus hótel er samkvæmt heimildum Eyjar.net að fara á fullt sem mun umbylta ferðaþjónustunni í Eyjum og styrkja ferðaþjónustuna svo um munar. Verkefnið hefur verið keyrt áfram af Skugga. Skuggi hefur margsýnt það að hann kann að byggja. Það má finna tengingar milli ofangreindra verkefna og þessa verkefnis.

Ísfélagið hf. lauk nýlega vel heppnuðu hlutafjárútboði, sem sýnir tiltrú fjárfesta. Stuttu áður hafði fyrirtækið byggt upp hrognavinnslu sína, sem er framkvæmd uppá hundruði milljóna. Þá tilkynnti Ísfélagið í gær um kaup á uppsjávarskipi sem kemur til félagsins á næsta ári.

Vinnslustöðin hf. er lögð á stað í mikla uppbyggingu. Gamla þróin var rifinn og er verið að byggja þar upp til framtíðar, vinnubúðir hafa verið reistar til að taka á móti þeim fjölda starfsmanna sem mun vinna við verkefnið. Þá kynnti félagið nýverið methagnað af starfsemi sinni.

Laxey sendi út tilkynningu í byrjun vikunnar þess efnis að lokið sé við sex milljarða hlutafjárútboð fiskeldisins. Það sem helst vekur athygli þar er hversu stórir erlendir aðilar eru meðal þátttakenda í útboðinu. Að fá inn aðila tengda EW Group, þýsku fjölskyldusamsteypunni er sagt risastórt. Svipað stórt og að fá Messi til liðs við sig fyrir þá sem spila í matvælageiranum.

Af öllu ofantöldu má sjá að tiltrú fjárfesta sé mikil á atvinnulífinu í Eyjum og það ofan á allt sem nú þegar er til staðar.

Nýjustu fréttir

Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Mikill áhugi á Eyjagöngum
Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.