Mjög merkilegt

Jón Baldvinn byrjaði á því að segja að honum kæmi það ekki við. Egill hélt áfram og spurði hvort hann ætlaði að kjósa Samfylkinguna. Ekki vildi Jón svara því játandi enda orðaður við að vera í baklandi Íslandshreyfingarinnar með �?mari og Margréti. �?að hljóta að teljast merkileg tíðindi að þessi fyrrum forystumaður Jafnaðarmanna skuli ekki vilja lýsa því yfir að hann styðji Samfylkinguna. �?að er ekki skrítið þótt SF tapi fylgi.
�?g horfði einnig á stjórnmálaumræðurnar úr Suðurkjördæmi á RUV. Mér fannst merkilegt og gott hjá Árna M. að rifja það upp í umræðunum um samgöngumál Eyjamanna að það var Steingrímur J.Sigfússon þáverandi samgönguráðherra og núverandi formaður VG sem lét stytta Herjólf. Hugmyndir voru uppi og teikningar lágu fyrir um stærra og hraðskreiðara skip heldur en núverandi Herjólfur er. Hefðu hugmyndir heimamanna um stærra og hraðskreiðara skip náð fram á sínum tíma væri staða mála í Eyjum allt önnur en hún er nú. Steingrímur formaður VG ber stærstu ábyrgðina í þeim efnum. Vestmannaeyingar og aðrir kjósendur í Suðurkjördæmi ættu að hafa það í huiga í kosningunum 12.maí n.k.
Sigurður Jónsson sveitarstjóri á siggijblogg.is

Nýjustu fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.