Námsstyrkir sem skila sér heim
Anton Örn frá Eyjalistanum

Aðsend grein

Anton Örn Björnsson

Sem kennari brennur mér margt á hjarta þegar kemur að námi og tækifærum unga fólksins okkar. Menntun er nefnilega eitt öflugasta tækið sem við getum afhent börnunum okkar til að móta sinn eigin heim. En við vitum líka að það er dýrt að læra, sérstaklega þegar halda þarf heimili fjarri heimabyggð.

Þess vegna viljum við hjá Eyjalistanum kynna nýja og djarfa hugmynd sem er beint svar við þeirri þörf að fá menntað fólk til baka heim til Vestmannaeyja.

Skrifum undir framtíðina saman
Við viljum skoða þann möguleika að bjóða sérfræðinemum sem vinna hjá Vestmannaeyjabæ sérstakan stuðning í formi námsstyrkja gegn því að þau skuldbindi sig til að koma heim að námi loknu og starfa hjá Vestmannaeyjabæ í að minnsta kosti tvö ár.

Við höfum séð oft að Vestmannaeyjabær er að auglýsa eftir sérfræðingum í hinar ýmsu stöður og hefur það gengið misvel að fá fólk til að sækja um sem er vísbending um að hingað vantar sérfræði menntað fólk.

Við hjá Eyjalistanum teljum að þetta sé vert að skoða. Við léttum undir með nemendum á erfiðum námsárum og tryggjum sömuleiðis á sama tíma að bærinn okkar búi yfir sérfræðiþekkingu í okkar mikilvægustu stofnunum.

Við þurfum ykkur heim
Við vitum að samkeppnin um menntað fólk er hörð. Með því að bjóða þennan stuðning sendum við skýr skilaboð.

Við höfum trú á ykkur, við þurfum á ykkur að halda og við viljum gera ykkur auðveldara að velja Vestmannaeyjar sem ykkar framtíðar starfsvettvang.

Nemendur sinna sínu sérfræðinámi meðfram starfinu og við styðjum ykkur í því, ekki bara með þremur dögum á ári eins og þetta er núna heldur langar okkur að skoða námsgjalda styrki til fulls sem og aðra styrki til að létta undir með ykkur.

Ekki bara styrkur
Með því að fjárfesta í sérfræðinámi einstaklinga þá erum við að styrkja grunnstoðir samfélagsins alls. Þetta snýst um að skapa rými þar sem ungt fólk finnur að það er dýrmætt og eigi auðveldara með að snúa heim. Við viljum búa til hvata sem gerir það að verkum að Vestmanneyjar sé fyrsti valkosturinn að lokinni útskrift.

Fjárfestum í þekkingu fyrir framtíðina. Það er besta leiðin til að tryggja að Vestmannaeyjar verði áfram framsækið og öflugt samfélag fyrir okkur öll.

 

Anton Örn Björnsson

Höfnudur er í 2. sæti á Eyjalistanum.

Nýjustu fréttir

Námsstyrkir sem skila sér heim
Tólf miljónir til Sagnheima
Landeyjahöfn: Dýpið mælt í dag
Anton Örn í 2. sæti á Eyjalistanum
ÍBV enn án sigurs eftir tap gegn Blikum
Kjarnaboranir á Eiðinu og uppbygging Laxeyjar
Héðinn Þorsteinsson – Björt framtíð fjarskipta í Eyjum
Kjarnaborinn laus – borun hafin á ný
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.