Neistinn er kveiktur!
22. júní, 2023

Það er mikið fagnaðarefni að upphafsmarkmiðin með rannsókar-og þróunarverkefninu ‘’Kveikjum neistann!’’ hér í Eyjum hafa náðst. Takmarkið var að eftir 2. bekk væru 80% nemenda læs og niðurstaðan varð að 83% nemenda teljast læs samkvæmt því mati sem lagt var fyrir. Í gær birtist síðan samantekt á niðurstöðum frá 20 þátttökuskólum um allt land, sem náði til um 500 nemenda. Þar var niðurstaðan að 53% nemenda við lok 2. bekkjar teljast læs samkvæmt þessum sömu viðmiðum. Við erum sem sagt að ná frábærum árangri! Stöðumat í lestri er notað frá fyrsta mánuði í skólanum, sem tryggir góða eftirfylgni. Þess er vandlega gætt að áskorun hvers nemenda sé í samræmi við færni hans, sem er grundvallaratriði. Upplifun og líðan nemenda í skólanum hefur mikil áhrif á árangur og tækfæri þeirra til að blómstra.

Kveikjum neistann hefur nú verið í gangi í Grunnskóla Vestmannaeyja í tvö ár. Verkefnið er með heildstæða nálgun á skólastarfið og byggir á vísindalegum niðurstöðum helstu fræðimanna á þessu sviði. Yfirmarkmið verkefnis er að bæta líðan, bæta árangur og efla áhugahvöt nemenda. Sem þýðir að gefa nemendum jöfn tækfæri og mæta þeim þar sem þeir eru staddir svo að þeir vaxi og dafni í námi. Kveikjum neistann er verkefni sem stýrt er af Hermundi Sigmundssyni, hann kom með það til Vestmannaeyjabæjar árið 2021 og í framhaldinu var gerður samstarfsamningur um rannsóknar- og þróunarverkefnið milli Vestmannaeyjabæjar, Samtaka atvinnulífsins, Háskóla Íslands og Menntamálaráðuneytisins.

Tækifæri til að ‘’vera’’ breytingin

Þótt margt sé jákvætt í íslenskum skólum má alltaf gera betur. Það vantar fleiri tól og tæki fyrir skóla og kennara til að vinna með. Kveikjum neistann er leið til þess að gera betur án þess að segja að allt annað sé ómögulegt. Ef skólinn getur unnið í því að skapa öllum nemendum aðstæður til að efla grunnfærni og bæta líðan þeirra, gefum við mun fleirum tækfæri til þess að nýta sína styrkleika. Það mun einnig hafa jákvæða fjárhagslega hvata á seinni skólastigum hvað varðar kostnað við sérúrræði. Ef hægt er að lyfta öllum þá skilar það sér margfalt til baka til nemenda og samfélagsins alls. Það felast mikil tækifæri í því fyrir sveitarfélög að skapa umgjörð fyrir þróun á skólastarfi hjá sínum skólum og starfsfólki þeirra. Einnig að virkja samfélagið með. Menntun barna á öllum skólastigum er jú sameiginlegt verkefni okkar allra.

Mikilvægt er að kennaranámið fylgi með í þessari þróun til að búa kennaranema enn betur undir þær skemmtilegu, krefjandi og gefandi áskoranir sem felast í kennarastarfinu.

Undirbúningsvinnan fyrir verkefnið tók um hálft ár áður en verkefnið sjálft hófst haustið 2021. Náin samvinna var við skólastjórnendur, kennara og  pólitíkina við undirbúninginn enda ekki hægt að fara af stað í svo viðamikið rannsóknar- og þróunarverkefni án þess.

Nú er komin tveggja ára reynsla á verkefnið. Það hafa verið margar áskoranir fyrir þá sem hafa unnið að verkefninu. Það er stoltur bæjarstjóri sem getur sagt að árangur er framar björtustu vonum. Yfirmarkmiðið var að bæta líðan, bæta árangur og efla áhugahvöt. Eftir þessi tvö ár er óhætt að segja að það hafi tekist með tilstilli og mikilli vinnu margra aðila. Árangurinn í lestri er frábær og framar mínum björtustu vonum.

Samfélagið er mjög jákvætt gagnvart verkefninu og kemur það fram með margvíslegum hætti. Bókasafn Vestmannaeyja hefur verið virkur þátttakandi ásamt skólasöfnunum og hefur það stækkað verkefnið. Kennararnir sem eru í verkefninu hafa staðið sig frábærlega og það smitast út í samfélagið og til foreldra og nemenda.

’Af litlum neista verður oft mikið bál“

Ég get ekki verið annað en ánægð fyrir hönd Vestmanneyjabæjar, Grunnskóla Vestmannaeyja, foreldra, nemenda og síðast en ekki síst kennaranna sem eru þátttakendur í verkefninu  með þessi fyrstu ár og árangurinn. Hermundur og hans fólk ásamt samstarfsaðilum eru að gera góð hluti og samfélagið hrífst með. Við hér í Eyjum erum stolt af verkefninu og að hafa verið fyrst sveitarfélaga til að taka þátt. Við erum að ná árangri.

Nú horfum við fram á veginn og höldum áfram að þróa og bæta okkar góðu skóla okkur öllum til hagsbóta!

 

Íris Róbertsdóttir

Bæjarstjóri

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
9. nóvember 2025
17:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.