Niðurgreiðsla vegna garðslátta í heimagörðum og arfahreinsun

Vestmannaeyjabær býður eftirlaunaþegum og öryrkjum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum niðurgreiðslu af kostnaði vegna garðsláttarþjónustu sem það kaupir. Þjónustuþegar leita sjálfir til þeirra þjónustuaðila sem bjóða upp á garðslátt. Niðurgreiðslan fyrir sumarið er að hámarki 20.000 kr á lóð gegn framvísun kvittunar fyrri þjónustuna.

Alla jafna er boðið upp á slíka niðurgreiðslu þar sem allir fullorðnir heimilismenn eru lífeyrisþegar en annars ekki. Réttur til þjónustunnar miðast við garð þess hús þar sem umsækjandi hefur fasta búsetu. Lóðir við fjöleignahús tilheyra ekki þessari þjónustu nema allir íbúar þess séu lífeyrisþegar og falli undir ofangreindar forsendur.

Framvísa þarf gildum kvittunum og nauðsynlegum upplýsingum í þjónustuveri Ráðhúss þegar sótt er um niðurgreiðsluna.

Nýjung er í sumar að Vestmannaeyjabær mun bjóða eftirlaunaþegum og öryrkjum upp á þá þjónustu að láta hreinsa beðið hjá sér og snyrta. Til þess að óska eftir þeirri þjónustu er bent á að hafa samband við Ernu Georgsdóttur í síma 488-2000 eða senda tölvupóst á ernag@vestmannaeyjar.is

 

Nýjustu fréttir

Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð
Goslok: dagskrá sunnudags
Goslokahátíð stendur undir nafni sem fjölskydluhátíð
Fjölbreytt mannlíf á öðrum degi Goslokahátíðar
Forsendur dómsins verða yfirfarnar
Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum
Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.