Nýr rekstrar- og umsjónaraðili með tjaldsvæðunum í Vestmannaeyjum
Tjaldbúar á Þjóðhátíð

Vestmannaeyjabær og Landamerki ehf. hafa gert með sér samkomulag um að Landamerki ehf. annist rekstur og umsjón þjónustumannvirkja þeim tengdum í Herjólfsdal og við Þórsheimilið í Vestmannaeyjum.

Samningurinn kveður á um að samstarfsaðili taki að sér að veita alla almenna þjónustu á tjaldsvæðum bæjarins, en jafnframt að annast daglegan rekstur, þ.m.t. starfsmannahald, kaup á þjónustu- og rekstrarvörum, sértækan rekstur og létt viðhald.

Miðað er við að tjaldsvæðin séu opin ferðafólki frá 1. maí til 30. september ár hvert. Samningurinn er til þriggja ára. Til stendur að ráða staðbundinn einstakling til að sinna tjaldsvæðunum í Vestmannaeyjum. Fram að því er hægt að hafa samband við Sreten Ævar hjá Landamerkjum í síma 778 8708 eða með tölvupósti á netfangið Sreten.aevar@landamerki.is. Hann tekur m.a. við pöntunum.

Nýjustu fréttir

Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.