Ólafur Helgi Kjartans­son til Eyja?

Ólafur Helgi Kjartans­son hefur skamman frest til að á­kveða hvort hann fellst á þá á­kvörðun dóms­mála­ráð­herra að flytjast til Vest­manna­eyja og taka við em­bætti lög­reglu­stjóra þar. Þetta kemur fram í frétt á vef fréttablaðsins.

Ráð­herra hefur þegar beðið Ólaf Helga að setjast í helgan stein, án árangurs, en nú hefur hún á­kveðið að færa hann til í starfi. Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra, hefur til­kynnt Ólafi Helga Kjartans­syni lög­reglu­stjóra á Suður­nesjum, um flutning hans til em­bættis lög­reglunnar í Vest­manna­eyjum. Þetta herma heimildir Frétta­blaðsins.

Til­kynningin mun hafa komið til hans með form­legu bréfi þar sem fram kemur að flutningur Ólafs Helga til Eyja taki gildi strax um mánaða­mótin, fallist hann á að flytjast af fasta landinu og hefur hann því skamman tíma til að taka af­stöðu til þessara breytinga.

Hafni Ólafur breytingunum, kann að vera ein­faldara fyrir ráð­herra að gera við hann starfs­loka­samning. Ólafur Helgi verður 67 ára í septem­ber og er því kominn á leyfi­legan eftir­launa­aldur.

Eins og greint var frá í fjöl­miðlum í síðustu viku hefur ráð­herra þegar óskað eftir því að hann láti af störfum hjá lög­reglunni á Suður­nesjum, þar sem allt hefur logað í ill­deilum undan­farna mánuði.

„Ég tjái mig ekki um það,“ segir Ólafur Helgi Kjartans­son, inntur eftir upp­lýsingum um fyrir­hugaðan flutning hans. Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra hefur ekki svarað fyrir­spurnum Frétta­blaðsins um málið.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.