Ágætu Eyjamenn.
Í kvöld, miðvikudaginn 10. feb. kl. 20 – 21.30 boðar Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG í Suðurkjördæmi boðar til fjarfundar í kjördæmaviku Alþingis. Fundurinn er fyrst og fremst um samgöngu- og heilbrigðismál með áherslu á Vestmannaeyjar og er öllum opinn þannig að við getum getum á einfaldan hátt tekið þátt í honum heima við tölvuna með hjálp netsins.
Með Ara Trausta á fundinum verður Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG og fulltrúi í velferðarnefnd Alþingis.
Á fundinum gefst okkur tækifæri til að spyrja þá félagana um ýmis mál sem snerta okkar samfélag og einnig getum við komið skoðunum okkar á framfæri og til umræðu.
Slóðin á fundinn er:
https://zoom.us/j/92581010578?pwd=MTdJSUJnVzB3QU80R2MyWU8wTUVZdz09 | |
Sjáumst á netfundi
Ragnar Óskarsson
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst