Öryggi lands­manna ógnað
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Hafdís Gunnarsdóttir

Það er með öllu óásættanlegt að mannanna verk valdi skertu öryggi íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Á sama tíma og aftakaveður geisar á landinu, veðuraðstæður sem geta gert almennt sjúkraflug ómögulegt, liggur neyðarþjónusta björgunarþyrlna Landhelgisgæslunnar alfarið niðri. Kjaradeila flugvirkja og skipulag í kringum viðhald hefur skapað þær aðstæður að neyðaraðstoð með björgunarþyrlum er einfaldlega ekki í boði. Það mà vissulega vona það besta, að ekki komi til þess að að íbúar landsbyggðarinnar, fólk à faraldsfæti og sjófarendur þurfi ákkúrat þessa tvo sólahringa á bráðaþjónustu björgunarþyrlna að halda sem geta og hafa skipt sköpum og verið lífsspursmál. En við þessar aðstæður er einfaldlega verið að spila rússneska rúllettu með heilsu og öryggi Íslendinga. Slíkt er auðvitað með öllu óboðlegt.

Bráðaþjónusta skorin niður á landsbyggðinni
Á undanförnum árum hefur bráðaheilbrigðisþjónusta verið markvisst skorin niður á landsbyggðinni en á sama tíma efld í Reykjavík. Þeir einstaklingar sem þurfa sérhæfða bráðaheilbrigðisþjónustu er því vísað í auknum mæli á Landspítala háskólasjúkrahús. Þetta fyrirkomulag hefur kallað á verulega aukningu á sjúkraflugi og hafa björgunarþyrlur sinnt þeim tilfellum þegar veður hamlar för flugvéla.

Aðgangur allra að heilbrigðisþjónustu
Á sama tíma og veruleg aukning er á sjúkraflutningum af landsbyggðinni eru skipulagsyfirvöld höfuðborgarinnar, aftur mannanna verk, að reyna leynt og ljóst að loka Reykjavíkurflugvelli. Í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er lokun flugbrauta í Vatnsmýrinni enn á áætlun og verður þeirri næstu lokað innan 13 mánaða. Reykjavíkurflugvöllur þjónar mikilvægu hlutverki sem miðstöð innanlandsflugs og með uppbyggingu nýs Landspítala háskólasjúkrahúss við Hringbraut var nauðsyn tilvistar Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri fyrir landsmenn alla fest í sessi. Væri Reykjavíkurflugvelli lokað líkt og vilji borgaryfirvalda stendur til yrði viðbragðstími sjúkraflutninga af landsbyggðinni aukinn verulega og þar með aðgengi íbúa landsbyggðarinnar og ferðalanga að sérhæfðri bráðaheilbrigðisþjónustu skert. Það væri einnig fullkomlega óboðlegt, enda er nýr Landspítali nýtt þjóðarsjúkrahús, sjúkrahús allra landsmanna en ekki bara borgarbúa.

Brýn nauðsyn sérhæfðrar sjúkraþyrlu
Öryggisleysið sem við búum við þessa daga sýnir okkur svo um munar hversu mikilvægt það er að öryggi íbúa sé ávallt í fyrirrúmi. Það sýnir okkur að við þurfum að læra af reynslunni og koma í veg fyrir að sambærilegar aðstæður komi upp aftur. Því þarf að tryggja sérútbúna sjúkraþyrlu með staðarvakt á Suðurlandi. Slík þyrla hefði margvíslega kosti i för með sér. Bráðaviðbragð fyrir íbúa og ferðafólk á Suðurlandi væri mun öruggara og hraðara og það myndi draga úr álagi á sjúkravélinni sem sinnir öllu sjúkraflugi á landinu frá Akureyri og þannig stytta viðbragðstíma vegna sjúkraflutninga annarra landshluta.

Tryggja þarf fjármögnun sjúkraþyrlunnar
Í desember á síðasta ári samþykkti ríkisstjórnin tillögu heilbrigðisráðherra sem felur í sér undirbúning tilraunaverkefnis um notkun sérhæfðrar sjúkraþyrlu til að styrkja sjúkraflutninga í landinu en lítið hefur heyrst af verkefninu síðan. Afar mikilvægt er að fjármögnun sjúkraþyrluverkefnisins verði tryggð og það komi til framkvæmda sem allra fyrst. Staðan í dag minnir okkur jafnframt á mikilvægi staðsetningar Reykjavíkurflugvallar, því áður en við vitum af munu svipaðar aðstæður blasa við okkur varðandi sjúkraflugið. Ríkisvaldið þarf með afgerandi hætti að tryggja að flugvöllurinn í Vatnsmýrinni fari ekkert, amk. þar til annar sambærilegur eða betri kostur finnst því ef fram heldur sem horfir mun Reykjavíkurborg loka flugvellinum í Vatnsmýri.

Samkvæmt lögum eiga allir landsmenn að eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita. Við skorum á stjórnvöld að bregðast við og tryggja þann lögbundna rétt landsmanna kirfilega svo þessi staða komi aldrei upp aftur.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.
Hafdís Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ

Nýjustu fréttir

Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.