​Óska eftir lóð undir aðra seiðaeldisstöð
Seiðaeldisstöð Laxeyjar í botni Friðarhafnar. Fyrirtækið áformar að reisa aðra seiðaeldisstöð í Viðlagafjöru. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja var tekin fyrir umsókn frá Laxey um stækkun iðnaðarsvæðis og lóðar í Viðlagafjöru. Í umsókninni er óskað eftir heimild til að hefja vinnu við skipulagsbreytingar sem fela í sér að landnotkunarreit efnistökusvæðis E-1, 5,1 hektari, falli undir landnotkunarreit iðnaðarsvæðis I-3 og að lóð fyrirtækisins nái yfir efnistökusvæði E-1.

Fyrirtækið vinnur nú að umhverfismati vegna aukins umfangs framleiðslugetu úr 11.500 tonnum í 42.000 tonn á ári ásamt áformum að reisa seiðaeldisstöð í Viðlagafjöru. Skipulagsbreytingarnar verði unnar á kostnað Laxeyjar ehf. í samstarfi við Vestmannaeyjabæ.

Í niðurstöðu ráðsins kemur fram að ráðið óski eftir frekari gögnum varðandi fyrirhuguð mannvirki og notkun á svæðinu. Ráðið fól framkvæmdastjóra ​umhverfis- og framkvæmdasviðs að boða til fundar með kjörnum fulltrúum vegna frekari kynningar á málinu.

Sjá einnig: Nýtt iðnaðarsvæði skipulagt

Nýjustu fréttir

Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.