Páll sendi ríkisstjórninni tillögu
PalliSceving
Páll Scheving Ingvarsson

Páll Scheving Ingvarsson sendi athyglisverða hugmynd í samráðsgátt stjórnvalda – sem í byrjun árs óskuðu eftir tillögum frá landsmönnum til hagræðingar, einföldunar stjórnsýslu og við að sameina stofnanir.

Lífeyrissjóðir fjármagni samgöngu-uppbyggingu

Páll hvetur ríkisstjórnina til að skoða möguleikann á því að leita samstarfs við lífeyrissjóði landsmanna til fjármögnunar á nauðsynlegri uppbyggingu og rekstri samgangna í landinu. Fjárfestingin og rekstur skilaði sér svo í veggjöldum til lífeyrissjóðanna.

Í greinargerð með tillögunni segir að með þessari aðferð verði fjármunir lífeyrissjóðanna nýttir í mikilvægan þátt í þágu almennings, þ.e. eiganda lífeyrissjóðanna. Með greiðslu veggjalda myndu landsmenn ekki einungis styrkja samgöngukerfið, heldur einnig lífeyrissjóðina. Að auki yrði nokkuð stór hluti af kostnaði við fjárfestinguna greiddur af erlendum ferðamönnum. Með því að færa kostnaðarsama uppbyggingu samgangna til lífeyrissjóða eykst svigrúm ríkissjóðs til uppbyggingar heilbrigðis og menntakerfis auk þess að ná jafnvægi í ríkisrekstri.

„Erlendir ferðamenn hjálpi okkur að greiða þetta niður og styrkja í leiðinni okkar lífeyrissjóði”

Páll segir í samtali við Eyjafréttir að með þessari tillögu vilji hann benda á leið sem hann hafi lengi verið með í kollinum. „Maður þekkir vegakerfið og hefur séð hvernig vegirnir standa engan veginn undir því álagi sem á þeim eru. Ég tala nú ekki um í seinni tíð eftir að umferð jókst og erlendum ferðamönnum fjölgaði mikið. Þegar aldurinn færist yfir sér maður þetta líka í aðeins öðru ljósi. Manni finnst vegakerfið alls ekki öruggt og maður veit að það mun ekkert róttækt gerast nema með einhverjum svona aðgerðum. Veggjöld er eitthvað sem margir mæla harkalega gegn, án þess að setja fram neinar lausnir sem virka til alvöru uppbyggingar á samgöngukerfinu,” segir hann.

Páll bendir einnig á í þessu samhengi að með því að fá lífeyrissjóðina með í verkefnið opnist mjög góð fjárfestingarleið fyrir sjóðina, sjóði okkar landsmanna. „Snilldin í því er ekki síst að erlendir ferðamenn hjálpa okkur að greiða þetta niður og styrkja í leiðinni okkar lífeyrissjóði.”

 

 

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.