Pallamótið - öflugt atskákmót í Eyjum laugardaginn 5. júní nk.

Taflfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að halda atskákmót í Eyjum laugardaginn 5. júní nk. Mótið er jafnframt til minningar um Pál Árnason, múrara ( 1945-2021) sem var traustur félagi í TV í um langt árabil. Þrátt fyrir erfið og langvarandi veikindi tók Páll þátt í Skákþingi Vm. 2018, 2019 og 2020. Á árinu 2021 verða liðin 95 ár frá stofnun Taflfélags Vm.


Atskákmótið í Eyjum hefst kl. 11.45 og verða tefldar 7 umferðir í opnum flokki 10 mín. á skák + 5 sek á leik, sem gefa stig við útreikning atskákstiga. Eftir fjórar umferðir verður tekið 20 mín. kaffihlé og síðan taka við þrjár umferðir. Vanur skákstjóri annast mótsstjórn. Reiknað er með að atskákmótinu ljúki kl. 16:30 síðdegis og þá verða kynnt úrslit og veitt verðlaun. Fyrstu verðlaun verða 100 þús. kr., önnur verðlaun kr. 50 þús. kr. og þriðju verðlaun 25 þús. kr. Einnig verða veitt sérstök verðlaun fyrir þrjá efstu 16 ára og yngri. Ekkert mótsgjald og kaffiveitingar í boði TV og styrktatraðila mótsins.

Herjólfur siglir allt að sjö ferðir á dag í sumaráætlun milli Eyja og Landeyjahafnar, en færri ferðir um Sjómanndags-helgina. Fyrir þá keppendur ofan af landi sem ætla dvelja mótsdaginn í Eyjum er td. hægt að fara kl. 10:45 í 35 mín. siglingu frá Landeyjahöfn til Eyja. ( mæting 30 mín. fyrir brottför) til að mæta tímalega í mótið. Akstur frá höfuðborgar-svæðinu til Landeyjahafnar tekur tæpar 2 klst. Mótsslit verða um kl. 16.30 síðdegis. Tímamörkum var breytt úr 15 mín +5 sek í 10+5 þar sem Herjólfur fer síðustu ferðina frá Eyjum laugardaginn 5. Júní kl. 17:00. Eingöngu 5 mín. ganga frá keppnisstað að Herjólfi og fyrsta ferð frá Eyjum Sjómannadaginn 6. júní kl. 12.00 á hádegi. Að sjálfsögðu er hægt að dvelja lengur í Eyjum, margt áhugavert að skoða, nægt gistirými og fjölbreyttir veitingastaðir. Þær sóttvarnareglur sem verða í gildi á mótsdaginn verða virtar í hvívetna.

Skráning þátttöku verður á skráningarformi gegnum skak.is
Stjórn Taflfélags Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.