Ráðgjöf um aflamark uppsjávarstofna fyrir árið 2024

Fyrir helgi veitti Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráð um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2024 (ices.dk). Hafrannsóknarstofnun birti á vef sínum helstu niðurstöður sem eru þessar:

Veruleg lækkun í norsk-íslenskri vorgotssíld

Norsk-íslensk vorgotssíld ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingastefnu, að afli ársins 2024 verði ekki meiri en 390 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 511 þúsund tonn sem er tæp 24 % lækkun á tillögum ráðsins um afla milli ára.

Ástæður þessarar lækkunar er bæði léleg nýliðun og stærð stofnsins mun fara undir aðgerðamörk nýtingarstefnunnar sem þýðir ráðgjöf með lægri veiðidánartölu. Gert er ráð fyrir að árgangurinn frá árinu 2016 verði uppistaðan í veiði næsta árs en árgangar þar á eftir eru metnir slakir.

Áætlað er að heildarafli ársins 2023 verði um 693 þúsund tonn sem er 35 % umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð því sett sér aflamark einhliða. Það hefur haft þær afleiðingar að frá árinu 2013 hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 4-42 % á ári.

Samantekt á ráðgjöfinni á íslensku má finna hér.

5 % lækkun í makríll

Makríll ICES leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli ársins 2024 verði ekki meiri en 739 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 782 þúsund tonn og því er um að ræða rúmlega 5 % lægri ráðgjöf nú.

Áætlað er að heildarafli ársins 2023 verði ríflega 1,1 milljón tonn sem er 47 % umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr makrílstofninum um skiptingu aflahlutdeildar.

Hefur hver þjóð sett sér einhliða aflamark sem hefur haft þær afleiðingar að veiðar hafa verið umfram ráðgjöf ICES. Frá árinu 2010 hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 9-86 % á ári og að meðaltali 40 %.

Samantekt á ráðgjöfinni á íslensku má finna hér.

13 % hækkun í kolmunna

Kolmunni ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingarstefnu, að afli ársins 2024 verði ekki meiri en tæp 1,53 milljón tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 1,359 milljón tonn og er því um að ræða 13 % hækkun á ráðgjöf frá í fyrra.

Ástæðan fyrir hækkun á aflamarki er vaxandi hrygningarstofn. Árgangarnir frá 2020 og 2021 eru metnir meðal þeirra stærstu sem mælst hafa við tveggja ára aldur. Þeir árgangar ganga að fullu inn í hrygningarstofninn árið 2024 og framreikningar sýna stækkandi hrygningarstofn næstu tvö árin sé ráðgjöf fylgt.

Áætlað er að heildarafli ársins 2023 verði tæplega 1,7 milljón tonn sem er 23 % umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr kolmunnastofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð sett sér einhliða aflamark. Það hefur haft þær afleiðingar að veitt er umfram ráðgjöf ICES og síðan 2018 hafa þær numið 23-38 % á ári og að meðaltali 28 %.

Samantekt á ráðgjöfinni á íslensku má finna hér.

Tækniskýrslu vinnunefndar ICES sem fjallar um þessa stofna verður hægt að nálgast hér.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.