Rausnarleg gjöf Líknar til HSU
DSC_0798
Frá afhendingunni. Eyjar.net/ÓPF

Kvenfélagið LÍKN afhenti í dag ný sjónvörp við hvert rúmstæði og á seturstofur á sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum. Sjónvörpin eru með nýju hótelkerfi sem auðveldar afþreyingar möguleika þeirra sem þar liggja inni.

Í tilkynningu frá Kvenfélaginu segir að Gyða Arnórsdóttir hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri hafi veitti tækjunum viðtöku fyrir hönd sjúkradeildarinnar. Sjónvörpin eru 20 talsins og búið er að setja þau öll upp, fólk er almennt mjög ánægt með sjónvörpin, en þau eru einföld í notkun, matseðillinn er aðgengilegur í þeim og má þar einnig finna fleiri afþreyingar möguleika. Gæði sjónvarpanna eru mjög góð, þau tengjast við netið svo fólk getur lesið texta af stærri skjá, myndin er skýrari en áður var og fjarstýringarnar eru mjög einfaldar. Einnig eru gefin 8 þráðlaus heyrnartól inn á fjölbýlin, heyrnartólin tengjast þráðlaust við sjónvörpin, en einnig er hægt að hlusta á útvarpið í þeim eða tengja við síma. Virði gjafarinnar er 3.450.567 kr. og eru LÍKN-ar konur afar stoltar af gjöfinni, sem mun bæta verulega aðstöðu og afþreyingar möguleika fólks á sjúkradeildinni og aðstandenda þeirra.

Að lokum viljum við minna á merkjasölu LÍKN, sem fram fer fimmtudaginn 23. maí og jafnframt þakka Eyjamönnum fyrir þátttöku í fjáröflunum félagsins. Þegar þú styður við Kvenfélagið LÍKN þá getum við gert enn betur í að styðja við samfélagið okkar, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.