Samband íslenskra sveitarfélaga vinnur leiðbeiningar vegna COVID-19

Bæjarráð ræddi á fundi sínum í gær áhrif heimsfaraldurs Covid-19 á samfélagið í Vestmannaeyjum, bæði á mannlíf og atvinnulíf. Ljóst er að ýmsar afleiðingar eiga eftir að koma fram og fyrirséð að þær munu hafa áhrif bæði á einstaklinga og fyrirtæki.

Nú þegar ríkisstjórnin hefur undirbúið aðgerðir sem miða að því að draga úr efnahagslegum skaða vegna faraldursins er sömuleiðis mikilvægt að Vestmannaeyjabær kanni í framhaldinu hvernig hægt verði að koma til móts við einstaklinga og fyrirtæki til þess að draga úr högginu.

Samband íslenskra sveitarfélaga vinnur nú að gerð leiðbeininga fyrir sveitarfélög um aðgerðir sem gætu mildað höggið fyrir fyrirtæki í erfiðri stöðu og lækkun eða frestun opinberra gjalda, til dæmis gjöld þegar um skerta þjónustu er að ræða.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.