Samgöngur við Vestmannaeyjar til umræðu á þingi
20. október, 2022

Guðrún Hafsteinsdóttir fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi gerði samgöngur við Vestmannaeyjar að umræðuefni í ræðustól Alþingis í gær. Þar kemur hún inná þá stöðu sem skapaðist í samgöngum við Vestmannaeyjar í síðustu viku og skort á flugi milli lands og Eyja. Ræðuna í heild sinni má sjá hér að neðan:

Virðulegi forseti. Ég tel mig knúna til að benda hér á þá grafalvarlegu stöðu sem er í samgöngumálum Vestmannaeyinga. Það voru margir Eyjamenn sem hlökkuðu mikið til í síðustu viku, enda haustfrí í skólum að hefjast og margir hugðu á ferðalög og langa helgi. Börnin hlupu heim úr skólanum á fimmtudag full eftirvæntingar, enda ætluðu margir upp á land sama dag. En þegar síst skyldi bilaði Herjólfur og siglingar lágu niðri. Eina tenging íbúa Vestmannaeyja við fastalandið bilaði og fólk komst hvorki lönd né strönd. Þetta er ekki flókið. Samgöngur til og frá Vestmannaeyjum eru ekki boðlegar eins og staðan er. Nú er siglt á gamla Herjólfi enda er sá nýi að fara í slipp. Sá gamli ristir dýpra og því er ekki hægt að sigla honum með sama hætti og þeim nýja og þess vegna fjölgar nú ferðunum í Þorlákshöfn. Og til að bæta gráu ofan á svart er ekkert áætlunarflug í boði lengur. Ekkert áætlunarflug hefur verið til Eyja síðan í lok maí á þessu ári. Innviðaráðuneytið styrkti flugið en telur ekki forsendur til að gera það áfram.

Virðulegi forseti. Við þekkjum öll sérstöðu Vestmannaeyja. Það er lágmarkskrafa íbúa eyjanna að það séu öruggar samgöngur til og frá eyjunum. Helst myndi maður vilja sjá reglulegt flug einhverja daga í viku og bind ég miklar vonir við að innan tíu ára verðum við farin að fljúga til Eyja á rafmagni. En nú þarf að bregðast við og ég skora á Vegagerðina að gera áætlun um viðbrögð þegar ekki er hægt að sigla í Landeyjahöfn. Það mætti hugsa sér að varaplanið væri að þá myndi flug taka við. Með öðrum orðum: Þegar skipið siglir ekki í Landeyjahöfn þá er gripið inn í með flugi þann tíma sem höfnin er úti.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst