Í dag áttust við ÍBV og ungmennalið Hauka í 1. deild karla í handbolta en leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum. Þetta var í þriðja sinn sem liðin mætast og í annað sinn í Eyjum en fyrri leikur liðanna þar, endaði með 25:25 jafntefli í æsispennandi leik. Spennan var ekki síðri í dag en lokatölur urðu 20:20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 9:10, gestunum í vil. Eyjamenn voru tveimur mörkum yfir 19:17 þegar skammt var til leiksloka en gestirnir náðu að kreista fram jafntefli sem teljast sanngjörn úrslit.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst