Segja verðmætasköpun á Íslandi stefnt í óvissu
Fréttatilkynning frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
_DSC0433.
Á miðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Íslenskur sjávarútvegur getur og vill áfram leggja ríkulega til samfélagsins, með heilbrigðum rekstri og góðum störfum um allt land, þannig að allir njóti ávaxtanna. Ef rétt verður á spilum haldið má leysa mikla verðmætaaukningu úr læðingi á komandi árum. Því er skorað á stjórnvöld að íhuga að stíga skref til baka og hugleiða hvort fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi nái þessu mikilvæga markmiði, segir í tilkynningu frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Þar segir jafnframt að samtökin hafi sent atvinnuvegaráðuneytinu athugasemdir við frumvarpsdrög um breytingar á lögum um veiðigjald. Stjórnvöld höfðu í litlu reynt að átta sig á íþyngjandi áhrifum frumvarpsins á afkomu fyrirtækja, fólks og sveitarfélaga víða um land áður en það var birt. Því var brýnt að ráðist yrði í þessa vinnu, þó að hún sé fjarri því að teljast tæmandi á svo skömmum tíma.

Í athugasemdunum eru meðal annars færð fyrir því rök að frumvarpsdrög ráðherra gangi í berhögg við stjórnarskrá. Þá er sýnt fram á að hugtakanotkun ráðherra um leiðréttingu á verðlagningu stenst enga skoðun. Greitt aflaverðmæti til skips hefur um áratugaskeið verið í föstum skorðum og byggst á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs, kjarasamningum og ákvæðum tekjuskattslaga um milliverðlagningu. Verð til skips og uppgjör til sjómanna hafa því verið rétt. Öllum ásökunum um vanmat eða röng verð er því alfarið hafnað.

Í athugasemdunum er einnig sýnt fram á mikla ágalla þess að byggja skattstofn á verðum á uppboðsmörkuðum, hvort heldur hér heima eða í Noregi. Einnig hversu fráleitt það er að leggja að jöfnu þau verðmæti sem verða til í Noregi og á Íslandi í tilfelli uppsjávartegunda. Samtökin vara sérstaklega við því að tekinn verði upp háttur Norðmanna, sem flytja stærstan hluta bolfisks óunninn úr landi. Slíkt mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir afkomu fólks víða um land og byggðafestu. Samkvæmt greiningu KPMG eru 10 sveitarfélög sem hafa yfir 30% af atvinnutekjum frá fiskveiðum og -vinnslu. Hækkun veiðigjalds kann að auka tekjur ríkisins til skamms tíma, en draga úr mikilvægum tekjum sveitarfélaga sem reiða sig á sjávarútveg.

Þá er einnig sýnt fram á það að arðsemi eigin fjár í sjávarútvegi er hvorki meiri né minni en í öðrum atvinnugreinum og arðgreiðslur sem hlutfall af hagnaði eru að meðaltali á liðnum árum hlutfallslega lægri en í viðskiptahagkerfinu. Fullyrðingum atvinnuvegaráðherra um að sjávarútvegur „mali gull“ er vísað til föðurhúsanna. Samkvæmt greiningu Jakobsson Capital leiðir boðuð hækkun á veiðigjaldi til þess að verðmæti íslensku sjávarútvegsfyrirtækjanna þriggja, sem eru skráð á markað, lækkar um 53,1 ma.kr. eða rúmlega 13% og ávöxtun lækkar niður í 7,9% hjá arðbærustu félögunum. Slík ávöxtun er ekki langt yfir ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Telur fyrirtækið að áhrifin verði verulegur samdráttur í fjárfestingu, sem svo aftur dragi úr hagvexti. SFS hafa enn til skoðunar áhrif á fleiri sjávarútvegsfyrirtæki, stór sem smá.

Að endingu er farið yfir vinnubrögð stjórnvalda en atvinnuvegaráðuneytið hefur enn ekki afhent öll umbeðin gögn. Augljóst er að fyrirliggjandi drög uppfylla ekki þær grundvallarkröfur sem gera verður til slíkra skjala um undirbúning, rannsókn, mat á áhrifum og samráð við hagaðila. Allir þessir þættir eru einir og sér alvarlegir ágallar. Þannig er til dæmis rétt að draga fram að atvinnuvegaráðuneytið virðist ekki hafa reiknað réttilega þá heildarhækkun á veiðigjaldi sem boðuð er. Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Spurt og svarað: Anton Örn frá Eyjalistanum
Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði
Sumarið heilsar með stórleik
ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum
Dagskráin á sumardaginn fyrsta

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.