Síðasti dagur til að sækja um lóðir við Miðgerði og Helgafellsbraut
Skýringarmynd sem sýnd er í deiliskipulagi fyrir austurbæinn.

Á miðnætti rennur út umsóknarfrestur fyrir lóðir sem Vestmannaeyjabær hefur auglýst við Miðgerði 1–11 og Helgafellsbraut 22–26. Um er að ræða lóðir fyrir einbýlishús, parhús og raðhús, og hvetur bærinn áhugasama til að skila inn umsóknum fyrir miðnætti í kvöld.

Vestmannaeyjabær býður upp á tvær lóðir fyrir parhús og sex lóðir fyrir einbýlishús við Miðgerði. Hámarksbyggingarmagn er 180 fermetrar á íbúð í parhúsi og 280 fermetrar fyrir einbýlishús. Byggingarhæðir eru breytilegar eftir staðsetningu, en heimilt er að byggja tvær hæðir sunnan við Miðgerði og eina hæð, eða eina hæð með kjallara, norðan við götuna.

Við Helgafellsbraut er í boði lóð fyrir raðhús með þremur íbúðareiningum. Gert er ráð fyrir að húsin verði á einni hæð og geti hver íbúð orðið allt að 170 fermetrar.

Þessu tengt: 16,8 milljóna króna kostnaður Minjastofnunar

Verð á lóðum

Lóðaverð er sem hér segir: Helgafellsbraut 22–26: 2.700.000 kr.. Miðgerði 1–3: 2.000.000 kr.. Miðgerði 5–7: 2.000.000 kr. og Miðgerði 2, 4, 6, 8, 9 og 11: 1.600.000 kr..

Aðeins er um byggingarrétt að ræða og eru tengigjöld, gatnagerðargjöld, eftirlitsgjöld og önnur gjöld ekki innifalin. Lóðaverð og 50% gatnagerðargjalda þarf að greiða innan 30 daga frá úthlutun.

Samkvæmt auglýsingu verða lóðir afhentar í núverandi ásigkomulagi og mun frágangur gatna fara fram samhliða uppbyggingu á svæðinu. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel skilmála í deiliskipulagi og nýjar vinnureglur um lóðaúthlutun.

Hér má sækja um lóðir.

Nýjustu fréttir

Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.