Skýrslunni stungið undir stól?​
Starfshópur Um Fýsileika Jarðganga Til Vestmannaeyja
Starfshópurinn - sem falið var að kanna fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja. Ljósmynd: Innviðaráðuneytið

Í sumar skilaði starfshópur sem þáverandi innviðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson skipaði í sl. haust – um könnun á fýsileika jarðganga á milli lands og Vestmannaeyja – af sér skýrslunni til núverandi innviðaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur.

Starfshópurinn hafði það hlutverk að setja fram sviðsmyndir um mismunandi útfærslur og kosti og galla hverrar fyrir sig. Þá var starfshópnum falið að leggja fram kostnaðarmetna áætlun um þær rannsóknir og greiningar sem framkvæma þarf, svo hægt verði að leggja endanlegt mat á fýsileika jarðganga til Vestmannaeyja.

Ekkert bólar hins vegar á birtingu skýrslunnar. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta eru komnar þó nokkuð margar vikur frá því hópurinn skilaði af sér til ráðherra og enn er þess beðið að hún líti dagsins ljós. Ritstjórn Eyjafrétta hefur marg spurt aðstoðarmann ráðherra um skýrsluna og hvort hægt sé að fá hana til birtingar og hefur fyrirspurn þess efnis legið hjá ráðuneytinu síðan 22. ágúst.

Ekki skilur undirritaður hvað það sé í skýrslunni sem ekki þolir dagsljósið, en hugsanlegt er að nýr ráðherra sé ekki jafn áhugasamur um verkefnið og forveri hans. Engu að síður er skýrslan tilbúin og hlýtur það að kalla á birtingu.

 

​Tryggvi Már Sæmundsson
Höfundur er ritstjóri Eyjafrétta/Eyjar.net.

Nýjustu fréttir

Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.