Slóveninn Filip Valencic til ÍBV í sumar

Slóvenski knattspyrnumaðurinn Filip Valencic hefur skrifað undir eins árs samning við knattspyrnudeild ÍBV. Hann kemur til með að styrkja liðið fyrir átökin í Bestu deildinni í sumar en liðið endaði í 8. sæti deildarinnar á sínu fyrsta ári í efstu deild síðan 2019.

Filip er 31 árs miðjumaður sem hefur leikið með öllum yngri landsliðum Slóveníu. Á ferli sínum hefur hann leikið í heimabæ sínum í Ljubljana og síðan einnig með Notts County, Stabæk, Monza og Dinamo Minsk.

Þá hefur hann leikið stóran hluta ferilsins í Finnlandi en hann var síðast á mála hjá KuPS og áður hjá Inter Turku, HJK og PS Kemi. Með HJK varð hann finnskur meistari í þrígang. Með KuPS var hann í eldlínunni í undankeppni Sambandsdeildarinnar (UECL) og skoraði þar eitt mark í fjórum leikjum 2022.

Í Finnlandi var hann leikmaður ársins árið 2017 og 2019, en seinna árið var hann einnig markahæsti leikmaður deildarinnar, hann getur leyst stöður inni á miðjunni og í sókninni.

Við hlökkum til samstarfsins með Filip og bjóðum hann velkominn til ÍBV.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.