Smáframleiðendur matvæla sameinast í Matsjánni
4. nóvember, 2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matsjána, verkefni sem er ætlað smáframleiðendum matvæla sem vilja efla leiðtogafærni sína, öðlast aukna getu til að þróa vörur og þjónustu og efla tengslanetið sitt í greininni. Matsjáin fer fram á 14 vikna tímabili frá 6. janúar til 7. apríl og samanstendur af sjö lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf. Verkefnið fer fram á netinu þvert á landið og lýkur með veglegri uppskeruhátíð þar sem þátttakendur hittast í raunheimi.

Verkefnið hlaut styrk úr Matvælasjóði og er byggt upp að fyrirmynd Ratsjárinnar sem er verkefni fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu þróað af Íslenska ferðaklasanum. Samtök smáframleiðanda matvæla og landshlutasamtök sveitarfélaga um land allt standa að Matsjánni en verkefnisstjórn er í höndum RATA.

,,Eitt af megin markmiðum Samtaka smáframleiðenda matvæla er að hámarka ávinning félagsmanna af aðild og lykil áhersluverkefni að auka þekkingu og þróa verkfæri sem geta nýst þeim í þeirra rekstri. Við sóttum því um styrk í Matvælasjóð til að bjóða upp á metnaðarfullt fræðsluverkefni í samstarfi við landshlutasamtökin – sem myndi einnig stuðla að auknu samstarfi og samtakamætti smáframleiðenda matvæla um land allt sem er einmitt megintilgangur samtakanna. Við erum stolt af því að geta stutt við bakið á okkar félagsmönnum og bjóðum alla aðra smáframleiðendur sem vilja slást í hópinn velkomna.” (Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla)

Matsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem smáframleiðendur matvæla standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun vera unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta með kosningu haft áhrif á þá fræðslu sem boðið verður upp á. Listi yfir möguleg umfjöllunarefni er að finna inn í umsóknarforminu hér. Meðal ávinninga af þátttöku má nefna að efla fókus í starfsemi og framleiðsluferli, öðlast ný verkfæri og þekkingu, aukin leiðtogafærni, koma auga á ný viðskiptatækifæri og aukið tengslanet og mögulegt samstarf meðal þátttakenda.

“Landshlutasamtökin tóku þátt í Ratsjánni fyrr á árinu og var mikil ánægja meðal þátttakenda og samtakanna með fyrirkomulagið og fræðsluna. Eftir samtal við SSFM sáum við að það var tækifæri á að nýta hugmyndafræðina í fleiri greinum og þróa verkefni fyrir smáframleiðendur matvæla. Við teljum verkefnið vel til þess fallið að efla stjórnendur í matvælaframleiðslu, ýta undir nýsköpun og vöruþróun í greininni og ekki síst stórefla tengslanetið á milli aðila sem getur ýtt undir samstarf og ný viðskiptatækifæri – allt þetta þvert á landið.” (Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV)

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og verkefnið hefst með kynningarfundi 2. desember kl. 15:00. Matsjáin hefst svo formlega 6. janúar og lýkur 7. apríl. Þátttökugjald í Matsjána er kr. 30.000, innifalið er gjaldfrjáls aðild að SSFM fyrir árið 2022. Þátttökugjald í Matsjána fyrir núverandi félagsmenn SSFM er 15.000 kr. Umsóknina má nálgast hér: Umsókn í Matsjána 2022

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst