Snjór og von á meiri snjó

Í fyrrakvöld byrjaði að snjóa all hressilega í Vestmannaeyjum og er nú talsverður snjór í Eyjum. Hafa ruðningstæki og menn haft  í nógu að snúast. Snjór er ekki óalgengur í Eyjum á þessum tíma en frost hefur verið óvenjumikið, níu stig á bílamæli í morgun. Í nótt og fram eftir morgni spáir suðaustan 14 metrum og snjókomu. Eitthvað hlýnar í bili en aftur kólnar og sér ekki fyrir endann á frostinu.

Eftirfarandi færslu setti Óskar Sigurðsson, fyrrum vitavörður í Eyjum inn á FB-síðu sína:

„Úrkoma síðasta sólarhringinn var 20,2 mm í Vestmannaeyjabæ en 0,0 mm á Stórhöfða. Illa komið fyrir Stórhöfða sem veðurathugunarstöð, getur ekki einu sinni mælt úrkomu í frosti og að sjálfsögðu ekki snjódýpt. Við veðuraðstæður eins og síðasta sólarhring hefur stunmdum orðið mesti snjórinn í Vestmannaeyjum. Nú er enginn á vegum Veðurstofu Íslands sem mælir snjódýpt í Eyjum.“

Mynd: Aðstandendur Miðbæjarfélagsins létu ekki kuldann og snjóinn trufla sig þegar nýja miðbæjarhliðið var vígt. Theódóra, formaður hafði orð fyrir hópnum.

 

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.