Sóttvarnaaðgerðir á landamærum óbreyttar til 15. janúar 2022

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreytta reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum vegna Covid-19, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Reglugerðin gildir til 15. janúar 2022. Ástæðan er mikil fjölgun smita innanlands að undanförnu. Sóttvarnalæknir bendir á að faraldurinn sé í töluverðum vexti, þeim fari fjölgandi sem veikjast alvarlega og faraldurinn sé farinn að hafa íþyngjandi áhrif á starfsemi Landspítala. Um 2% þeirra sem greinast með Covid-19 þurfa að leggjast inn á sjúkrahús.

Nú er að hefjast átak í áframhaldandi bólusetningum gegn Covid-19, líkt og sóttvarnalæknir greinir frá í pistli á vefnum covid.is og verður það kynnt nánar á næstu dögum. Allir 60 ára og eldri verða kallaðir inn í sína þriðju bólusetningu (örvunarbólusetningu) sem og einstaklingar með undirliggjandi ónæmisvandamál og ýmsar framvarðasveitir t.d heilbrigðisstarfsmenn, lögregla og sjúkraflutningamenn. Til skoðunar er einnig að bjóða öllum almenningi örvunarbólusetningu. Örvunarbólusetning verður fyrst gefin 5-6 mánuðum eftir skammt númer tvö.

Nýjustu fréttir

Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.