Spáð í spilin fyrir HM karla í handbotla
Hrafnhildur Skúladóttir

HM karla í handbolta hefst formlega í dag með leik Frakklandi gegn Katar í Herning í Danmörku. Ísland spilar sinn fyrsta leik á fimmtudaginn n.k. gegn Grænhöfðaeyjum og fer leikurinn fram í Króatíu, en landsmenn bíða spenntir eftir því að sjá strákana mæta til leiks. Við hjá Eyjafréttum tókum púlsinn á stuðningsmönnum íslenska landsliðsins í aðdraganda mótsins og byrjuðum á að ræða við handboltakempuna Hrafnhildi Skúladóttur.

Hvernig telur þú að Íslandi muni ganga í riðlakeppninni?  Við eigum eftir að komast auðveldlega í milliriðlana en mikilvægt að fara þangað með sem flest stig þannig að það verður mikilvægur leikurinn á móti Slóvenum sem verður pottþétt mjög jafn leikur. Vonandi að hann falli bara okkar megin.

Telur þú það muni hafa mikil áhrif á liðið að það vanti nokkra lykilmenn í liðið? Nei er ekki týpískt að það muni bara hafa jákvæð áhrif.  Minni pressa á liðið þannig að ég held að með okkar frábæra fyrirliða þá er þetta ekki að fara að hafa áhrif.

Hvaða lið í riðlinum telur þú vera helstu ógnirnar fyrir Ísland? Slóvenía fyrst og fremst og held ég að það verði alltaf úrslitaleikurinn í riðlinum. Held að hinir tveir verði okkur frekar auðveldir og þá helst Grænhöfðaeyjar.

Hverjir eru helstu styrkleikar íslenska landliðsins að þínu mati? Frábær liðsheild og baráttuandi. Erum líka með frábæra markmenn sem skiptir miklu máli og vörnin þarf að smella á þessu móti ef við ætlum okkur langt.  Mikilvægt að fá auðveldu mörkin sem koma með góðri vörn þar sem við höfum verið í smá brasi með sóknarleikinn inn á milli. Sérstaklega á móti stórum og sterkum vörnum.

Hvernig finnst þér að sjá Elliða Snæ Viðarsson sem fyrsta Eyjamannin til að vera fyrirliði íslenska landsliðsins? Finnst það frábært og skil mjög vel að hann hafi verið valinn í þetta hlutverk þar sem vandfundinn er betri karakter. Hlakka mjög mikið til að fylgjast með honum og liðinu á næstu dögum. Áfram Elliði og áfram Ísland!

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.