Staðfest smit orðin sjö og 133 í sóttkví

Í dag greindust 5 einstaklingar með COVID-19 smit í Vestmannaeyjum og eru staðfest smit hér því orðin 7 talsins. Þetta kemur fram á facebook síðu lögreglunar í Vestmannaeyjum.

Snemma dags kom í ljós að starfsmaður á leikskólanum Sóla var með staðfest smit og var leikskólanum þá þegar lokað á meðan málið yrði rakið. Nú liggur niðurstaða fyrir og vegna smitsins á Sóla eru 55 komnir í sóttkví, þar af eru 27 starfsmenn og 14 börn. Þá ber að geta þess að börnin tilheyra einum kjarna leikskólans. Ástæðulaust er að telja að fleiri börn leikskólans hafi verið útsett fyrir smiti enda höfðu verið gerðar ráðstafanir til að takmarka samneyti barnanna á milli deilda.

Eftir daginn eru samtals 133 í sóttkví í Vestmannaeyjum. Smitrakning hinna fjögurra tilfellanna er þegar hafin en eitt þeirra varðar aðila sem þegar var í sóttkví.

Þessi vinna á allan hug viðbragðsaðila og allt er gert til þess að reyna að tryggja hag samfélagsins. Við biðlum áfram til Vestmannaeyinga að fara að leiðbeiningum því saman stöndum við sterkari.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.