Stærstu síldarvertíð í sögu Vinnslustöðvarinnar er lokið

„Ísleifur VE sló botn í veiðarnar á vertíðinni og vaktin í uppsjávarvinnslunni aðfaranótt þriðjudags 30. nóvember lauk við að vinna aflann. Þar með kláraðist vel heppnuð vertíðarlota norsk-íslenskrar síldar og Íslandssíldar.

Mér er óhætt að fullyrða að þetta sé stærsta síldarvertíðin í sögu Vinnslustöðvarinnar,“ segir Sindri Viðarsson sviðsstjóri uppsjávarsviðs VSV.

Skip félagsins færðu að landi yfir 20 þúsund tonn af síld á vertíðinni, sem jafngilda um 10 þúsund tonnum af afurðum. Starfsmenn í uppsjávarvinnslunni stóðu vaktir samfellt frá 12. september til loka nóvember, alls 122 síldarvaktir! Þar áður stóðu þeir makrílvaktir frá byrjun júlímánaðar.

Óhætt er því að segja að vinnutörnin sé orðin bæði löng og ströng en hún skilaði líka miklum verðmætum fyrir alla sem að komu og svo auðvitað fyrir samfélagið í Eyjum og sjálft þjóðarbúið.

Síldin er aðallega seld til Póllands og fleiri Austur-Evrópuríkja, til Þýskalands og Afríku. Síðastnefndu kaupendurnir vilja síldina heilfrysta en hinir fá flök eða flapsa (samhangandi flök).

„Við förum nú í það að græja skipin til loðnuveiða og freistum gæfunnar á miðunum fyrir jól. Vonandi veiðist eitthvað á þeim tíma sem eftir lifir af árinu og hugsanlega frystum við eitthvað. Líklegra er samt að stór hluti þess sem kann að fást fari í bræðslu.“ 

Nýjustu fréttir

Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.