Njáll Ragnarson skrifaði grein um daginn sem heitir, Lífæð samfélagsins, mig langar að gera nokkrar athugasemdir við þessi skrif. Það hefur aldrei verið erfitt fyrir framsóknarmenn að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Enda eru þeir vinglar í skoðunum og eiga því auðvelt með að eigna sér allt. Í pistli Njáls í Eyjafréttum þá eignar hann Framsóknarflokknum að samgöngur til Eyja hafi tekið stórstígum framförum í tíð Framsóknarmanna. Bendir hann á þrennt í máli sínu til stuðnings, dýpkun í Landeyjahöfn allan ársins hring, örari ferðir Herjólfs og meintan heiður samgönguráðherra um jafna gjaldtöku hvort heldur siglt er frá Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Góð verk frá fyrri tíð
Það er fyrst nú að telja að síðasti meirihluti í bæjarstjórn náði því í gegn við samninganefnd ríkisins að sama gjald yrði tekið hvort heldur sem siglt væri frá Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Samgönguráðherra má alveg eiga það að hann lagðist ekki gegn þessu, en frumkvæðið átti hann ekki frekar en í öðrum málum. Sama gildir um tíðni ferða. Með samstöðu Eyjamanna í síðustu bæjarstjórn og með mikilli einurð þá náðist í gegn að fjölga ferðum með því að Eyjamenn tækju yfir reksturinn. Það gekk þrátt fyrir mikla andstöðu samstarfsaðila Njáls.
Vanþekking og blekkingar
Njáll opinberar vanþekkingu sína með að halda því fram að ársdýpkun í Landeyjahöfn hafi haldið henni opinni síðasta árið. Reynir hann að blekkja bæjarbúa með því að láta eins og það sé í fyrsta skipti. Það hefur verið dýpkað allt árið um í kring frá því að Landeyjahöfn var opnuð árið 2010. Oftast með mjög takmörkuðum árangri yfir háveturinn. Dýpkun sl. vetur var ekki sú mesta frá því höfnin var opnuð, langt í frá. Munurinn á að siglt hefur verið oftar til Landeyjahafnar felst alls ekki í dýpkun, heldur það að nú er kominn nýr Herjólfur sem er með mun minni djúpristu en sá gamli og betri stjórnhæfni. Það að ný ferja kom er að þakka mikilli elju og baráttu fyrri bæjarstjórnar en alls ekki þeirrar sem nú situr. Eins og allir þekkja voru það úrtölumenn H-listans sem nú situr í skjóli Njáls í bæjarstjórn sem reyndu allt til að hindra að ný ferja kæmi, meira að segja var farið fyrir fjárlaganefnd alþingis með þann tilgang einan að reyna að stöðva fjármagn til smíðinnar, mjög litlu munaði að þeim hefði tekist það.
Reksturinn í heimabyggð lykillinn
Við eigum ágætu Eyjamenn harðri baráttu og stefnufestu fyrri bæjarstjórnar og bæjarstjóra að þakka að samgöngur okkar hafa tekið stórstígum framförum og er ég stoltur yfir því að hafa fengið að taka þátt í því ferli, þó svo að hafa fengið mjög litlar þakkir fyrir hjá núverandi bæjarstjórn. Þessar framfarir náðust með gerð Landeyjarhafnar, nýrri ferju og því að heimamenn tóku yfir reksturinn. Skjólstæðingar Njáls, fólkið sem skipar H-listann börðust gegn nýrri ferju og því að heimamenn tækju yfir reksturinn. Þessu megum við ekki gleyma.
Staðan getur versnað
Erfitt er að dýpka í og við Landeyjahöfn yfir háveturinn, því var ætlunin að grípa til þess ráðs að dýpka frá landi frá varnargarðhausum. Framsóknaráðherrann og skósveinar hans hættu við þessu áform. Þegar við fáum vetur með miklum lægðagangi, þá eru miklar líkur á að siglingar verði erfiðar til Landeyjarhafnar vegna ónógs dýpis þrátt fyrir litla djúpristu Herjólfs. Þá verður ekki unnt frekar en áður að dýpka frá sjó. Þegar sá tími rennur upp mun Njáll og formaður Framsóknar gleyma að er þeirra og núverandi bæjarstjórnar að hafa hindrað þann möguleika að dýpka frá landi. Ég vil taka fram að ég er ekki í neinu framboði og vil Eyjunum allt það allra besta, rétt eins og áður, ég er aðeins að minna bæjarbúa á að hvað er rétt.
Gefum Framsókn frí.
Andrés Sigurðsson yfirhafnsögumaður Vestmannaeyjahafnar
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst