„Stór og góður þorskur“
Vestmannaey_bergur_jan_24_tms
Vestmannaey og Bergur við bryggju í Eyjum. Eyjar.net/TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gær. Rætt er við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar og voru þeir spurðir frétta af aflabrögðum og veðri.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að túrinn hafi verið fínn fiskilega.

„Það er hins vegar annað mál hvað veðrið varðar. Það var kolvitlaust veður allan túrinn en við vorum á Höfðanum og á Breiðamerkurdýpinu. Aflinn var langmest þorskur, stór og gullfallegur. Síðan var aðeins af ýsu og ufsa. Það er verið að skoða hvenær verður farið út á ný. Í sannleika sagt er spáin algert ógeð,“ segir Birgir Þór.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergi, var ánægður með veiðiferðina. „Við vorum á Ingólfshöfðanum allan tímann og þar var fínasta kropp. Aflinn var langmest stór og góður þorskur. Það eina sem skyggði á var veðrið. Það var í reynd hundleiðinlegt, haugasjór og allt upp í 30 metrar. Þetta var bara skítaveður. Við förum út í dag klukkan eitt eftir hádegi. Spáin er svipuð fyrir helgina en veðrið gæti farið að skána upp úr því,“ segir Ragnar.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.