Stuttur og góður túr
Vestmannaey V Landar 20220717 111132
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Birgis Þórs Sverrissonar skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt.

„Við fengum allan aflann á Höfðanum og stoppuðum þar í einungis 31 klukkustund. Það var kaldafýla allan tímann á meðan við vorum að veiðum en við fengum hins vegar gott veður á landleiðinni. Fiskurinn sem þarna fékkst var svakalega fallegur. Þetta var mest stór þorskur en einnig góð ýsa. Það er oft svona fisk að fá á Höfðanum. Þarna var um vertíðarfisk að ræða, hann var hrognafullur. Það var engin loðna í fiskinum þarna en hins vegar var sandsíli í honum. Við sáum aftur á móti loðnu út af Eystra Horni, þar voru dágóðir loðnuflekkir. Þessi túr var semsagt stuttur og góður hjá okkur en við vorum fyrsta skipið sem veiddi á Höfðanum eftir bræluna. Þau skip sem komu á eftir okkur fengu lítið og leituðu fljótt á önnur mið,” sagði Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.